
Enzo Maresca er klár í næsta stjórastarf en vill lítið segja um hvar það verður.
Leiðir Maresca og Chelsea skildu í byrjun árs, en hann hafði stýrt Lundúnaliðinu í um eitt og hálft ár.
„Ég er klár í næsta kafla á ferlinum,“ sagði Maresca, spurður út í framtíðina.
Ítalinn hefur verið mátaður við stjórastólinn hjá Manchester City sem arftaki Pep Guardiola þegar hann hættir, en hann vann hjá City áður en hann tók við Leicester og síðar Chelsea.
„Það sem skiptir mestu máli, burt séð frá um hvaða félag er að ræða, er að vera tilbúinn,“ sagði hann hins vegar um þau mál og kveðst ekki vera að flýta sér að finna starf.
„Það eru enn nokkrar vikur eftir af tímabilinu. Við sjáum hvað setur.“