

Jan Bednarek, fyrrum leikmaður Southampton og núverandi varnarmaður Porto, varð ásamt fjölskyldu sinni fyrir skelfilegri lífsreynslu þegar vopnaður ræningi braust inn á heimili þeirra í Portúgal.
Samkvæmt portúgölskum miðlum á atvikið sér stað á föstudagskvöld þegar Bednarek kom heim af veitingastað með eiginkonu sinni Juliu og dóttur þeirra. Þar mun fjölskyldan hafa komið að innbrotsþjófi sem var vopnaður hnífi.
Ræninginn er sagður hafa ógnað pólska landsliðsmanninum áður en hann flúði af vettvangi með skartgripi að verðmæti um 130 þúsund punda. Sem betur fer sakaði hvorki Bednarek né fjölskyldu hans í árásinni.
Lögreglan í Portúgal rannsakar málið nú og hefur rannsóknin verið færð yfir til sérsveitar rannsóknarlögreglunnar, Policia Judiciaria. Hann er sagður hafa stolið skartgripum fyrir rúmar 20 milljónir.
Bednarek hefur ekki tjáð sig opinberlega um málið en eiginkona hans birti myndskeið á samfélagsmiðlum fyrr um daginn þar sem fjölskyldan heimsótti listasafn í Porto.
Varnarmaðurinn gekk til liðs við Southampton árið 2017 og lék um árabil með félaginu í ensku úrvalsdeildinni. Hann spilar nú með Porto sem varð nýverið portúgalskur meistari.