

Guðmundur Ari Sigurjónsson þingmaður Samfylkingarinnar gerði sér lítið fyrir um helgina og vann skemmtiskokk í karlaflokki í Neshlaupinu sem fram fór á laugardag á Seltjarnarnesi.
Tveggja ára og níu ára drengir máttu láta sér lynda 2. og 3. sætið.
Guðmundur Ari hljóp 3,25 km á 14,31 mínútu.
Á Facebook-síðu Neshlaupsins má sjá verðlaunaafhendingu í öllum flokkum.