

Söngkonan Bonnie Tyler er nú að jafna sig eftir bráðaaðgerð í meltingarvegi, en talsmaður hennar segir að aðgerðin hafi gengið vel.
„Við vitum að fjölskylda hennar, vinir og aðdáendur verða áhyggjufullir yfir þessum tíðindum og að fólk óski eftir skjótum og góðum bata.“
Söngkonan er 74 ára gömul og er búsett í Portúgal. Hún gerði garðinn frægan á níunda áratug síðustu aldar með ógleymanlega slagaranum Total Eclipse of the Heart. Hún var eins fulltrúi Bretlands í Eurovision-söngvakeppninni árið 2013.