fbpx
Mánudagur 04.maí 2026
433Sport

Skrifar undir nýjan langtímasamning – Var orðaður við stórlið

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 4. maí 2026 16:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fabian Hurzeler er að gera nýjan langtímasamning sem stjóri Brighton samkvæmt helstu miðlum.

Þjóðverjinn, sem er aðeins 33 ára, átti eitt ár eftir af núverandi samningi sínum en hann verður nú framlengdur eftir góðan árangur á suðurströndinni.

Hurzeler tók við liðinu sumarið 2024 af Roberto De Zerbi og varð þá yngsti aðalþjálfari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Brighton er sem stendur í 8. sæti deildarinnar og er enn í baráttu um Evrópusæti, en liðið hefur einu sinni áður komist í Evrópukeppni.

Hurzeler kom til félagsins eftir að hafa gert vel með þýska liðið St. Pauli og stýrt því upp í efstu deild.

Hann hefur verið orðaður við lið í Þýskalandi, þar á meðal Bayer Leverkusen, en Brighton hefur nú tryggt sér áframhaldandi veru hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Howe þurfti að svara erfiðum spurningum eigenda en verður áfram

Howe þurfti að svara erfiðum spurningum eigenda en verður áfram
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Hermann hefur rætt við Ástbjörn í kjölfar ásakanna um að hafa kýlt hann – Segir málið hafa verið hressilega blásið upp

Hermann hefur rætt við Ástbjörn í kjölfar ásakanna um að hafa kýlt hann – Segir málið hafa verið hressilega blásið upp
433Sport
Í gær

Liverpool sagt hafa gert tilboð í varnarmann á Ítalíu

Liverpool sagt hafa gert tilboð í varnarmann á Ítalíu
433Sport
Í gær

Segir frá því þegar hann reifst við Bruno Fernandes

Segir frá því þegar hann reifst við Bruno Fernandes
433Sport
Í gær

Jóhann hvetur þá til að fara ekki á taugum

Jóhann hvetur þá til að fara ekki á taugum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Keypti sér glæsilegt nýtt heimili á rúman milljarð

Keypti sér glæsilegt nýtt heimili á rúman milljarð