
Matheus Cunha segir Michael Carrick koma með töfra frá tíma Sir Alex Ferguson inn í Manchester United.
Carrick tók við sem bráðabirgðastjóri United eftir að Ruben Amorim var rekinn í janúar og hefur hann gjörbreytt gengi liðsins.
Undir stjórn Carrick, sem er fyrrum leikmaður United til tólf ára, hefur United unnið tíu af fjórtán leikjum í ensku úrvalsdeildinni og er búið að tryggja sig aftur inn í Meistaradeildina.
„Hann hefur töfra frá Ferguson-tímanum. Hann kennir okkur hvernig hlutirnir voru og færir það yfir til okkar,“ segir Cunha, sem hefur verið öflugur undir stjórn Carrick.
Brasilíumaðurinn segir þó að liðið hugsi enn stærra fyrir næstu tímabil.
„Þetta félag á að berjast um titla. Við getum orðið miklu sterkari á næsta tímabili.“