fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fókus

Helgi kannaðist fljótt við sig sem „góðkunningja“ lögreglunnar

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 3. maí 2026 14:30

Mynd: Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er virk á Facebook og birtir oft myndir úr safni sínu frá síðustu árum og áratugum. Svo var einnig á laugardag þegar þessi mynd var birt af tveimur ungum lögreglumönnum og ungum dreng sem var með þeim í för.

„Það var nokkuð létt yfir þessum þremenningum sem ljósmyndarinn rakst á í Þingholtunum í Reykjavík árið 1988. Skrifara sýnist að myndin sé tekin á mótum Skálholtsstígar og Miðstrætis, en ekki er honum kunnugt um hvaða verkefni þeir voru að sinna í eftirlitinu þann daginn. Lögreglumennirnir á stóru bifhjólunum eru Höskuldur Birkir Erlingsson (t.v.) og Jón Jón Steingrímsson, en því miður vantar okkur nafn „unga lögreglumannsins“ á þríhjólinu!“

Mynd: Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu.

Myndin sló í gegn meðal fylgjenda og spurði einn hvort þetta væri ekki bara fyrsta umferðarlagabrotið hjá unga drengnum. Guðmundur Óli Hrafnkelsson skrifaði að gamni: „Byrjaði snemma að vera „Góðkunningi“ Lögreglunnar “.

Níu tímum eftir birtingu myndarinnar skrifaði ungi drengurinn, nú orðinn ungur maður undir myndina:

„Sæl Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er víst ég. Myndin er tekin á horni Miðstrætis og Skálholtsstígs, 14. júlí 1988. Lögreglan hélt vörð um franska sendiherrabústaðinn vegna Bastilludagsins. Ég bjó í Miðstræti 10 og fékk að taka þátt. Ég var alveg að verða fjögurra ára,“

skrifar Helgi Hrafn Guðmundsson, sagnfræðingur, sem stóð vörð með lögreglumönnunum ungu þennan fimmtudag fyrir 38 árum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Manstu eftir Ólympíufaranum Raygun? – Hún var að fá leiðinlegar fréttir

Manstu eftir Ólympíufaranum Raygun? – Hún var að fá leiðinlegar fréttir
Fókus
Fyrir 4 dögum

Svali fann ástina í örmum Birnu

Svali fann ástina í örmum Birnu
Fókus
Fyrir 1 viku

Raðar Harry Potter myndum sínum í eftirlætisröð – Hver ætli honum finnist síst?

Raðar Harry Potter myndum sínum í eftirlætisröð – Hver ætli honum finnist síst?
Fókus
Fyrir 1 viku

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu