fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fókus

Hefur þú gert mistök? – Ragnhildur er með ráð við því

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 3. maí 2026 12:30

Ragga nagli Mynd: Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pistlar Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðings, betur þekkt sem Ragga nagli, sem skrifaðir eru á mannamáli njóta mikilla vinsælda á Facebook-síðu hennar. Í þeim nýjasta fjallar Ragga um mistök, eitthvað sem við gerum öll, jafnvel oft, og hvaða afleiðingar þau hafa fyrir okkur.

„Hefurðu gert mistök? Kvíði yfir einhverju sem þú gerðir í vinnunni, að sinna ekki heilsunni eins og þú vildir, kynningu í skólanum, samskiptum á heimilinu, jafnvel eftir að hafa haldið matarboð. Eitthvað sem þú sagðir. Brandari sem fór fyrir ofan garð og neðan. Eitthvað sem þú gerðir.“

Ragga spyr hvort þú hafir upplifað skömm og eftirsjá ?

„Rifið sjálfið niður með sleggju, kveikt í rústunum með samviskubiti og hellt síðan úr bensínbrúsa sektarkenndar.
Horft á niðurrifsbálið og hent inn eldiviði af ljótum  hugsunum.
Með vísifingurinn á lofti.
Dómhörkuna í blússandi botni.

Af hverju gerði ég þetta? Ég er svo mikill lúser og landeyða. ALLIR hata mig núna. Ég kann ekkert. Veit ekkert. Skil ekkert.“

Ragga segir að þegar við gerum mistök þá finnst okkur við ekki nógu eitthvað: falleg, fitt, skemmtileg, fyndin, sniðug, gáfuð, rík, góð, umhyggjusöm….. bara hvað passar í eyðurnar þann daginn.

Hún segir að það að gera mistök sé merki um að þú þjáist af sjúkdómnum „mannlegur.“

„Áætlað er að um rúmlega sjö milljarðar manna þjáist af þessum sjúkdómi. Einkenni koma og fara og standa yfir mislengi hjá hverjum og einum. Þessi sjúkdómur herjar á alla sem gerðir eru úr húð og draga andann. Ekki hefur fundist bóluefni við sjúkdómnum ennþá og stendur ekki til. Kurteisisfjarlægð og úldna gríman frá 2020 virka ekki sem forvörn.“

Ragga segir að það að velta sér upp úr samviskubiti, sektarkennd og skömm kveiki á streitukerfinu og með tímanum getur það leitt til kulnunar og örmögnunar.

„Eina lækningin er að tileinka sér samkennd í eigin garð, kryddað með sjálfsmildi og toppa það með sáttinni. Til að lina einkennin hefur reynst best að sleppa alveg dómhörku í eigin garð. Það flýtir bata að axla ábyrgð (ef það á við). Að halda áfram og draga mögulegan lærdóm kemur þér á lappir á núlleinni. En pillan sem svínvirkar er að fyrirgefa sjálfinu þegar þú gerir mistök.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Svali fann ástina í örmum Birnu

Svali fann ástina í örmum Birnu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends
Fókus
Fyrir 1 viku

Gerðu plötu á einni helgi

Gerðu plötu á einni helgi
Fókus
Fyrir 1 viku

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“
Fókus
Fyrir 1 viku

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“