
Manchester United þarf að greiða hærra verð fyrir Benjamin Sesko eftir frammistöðu hans á tímabilinu.
Framherjinn skoraði sitt ellefta mark frá því hann gekk í raðir United frá Leipzig í sumar í 2-1 sigri á Brentford á Old Trafford, en hann er lykilmaður í liði Michael Carrick.
United greiddi upphaflega um 66 milljónir punda fyrir Sesko en samkvæmt nýjustu fréttum mun heildarupphæðina nú líklega fara í um 74 milljónir punda.
Er þetta vegna leikjafjölda og marka Slóvenans, auk þess sem United er svo gott búið að tryggja sæti sitt í Meistaradeild Evrópu á ný.
Ákvæði þessu tengd voru sett í samkomulagið milli United og Leipzig.