
Konan var á heimleið til Canberra í Ástralíu eftir heimsókn hjá ættingjum í Darwin. Eiginmaður hennar og tvö börn voru með í för.
Þau stöðvuðu við kamarinn, sem er staðsettur við Henbury Meteorites Conservation Zone sem er um 145 km suðvestan við hinn afskekkta bæ Alice Springs.
Konan stóð í saur upp að mitti í þrjár klukkustundir en þá vildi henni til happs að sölumaður átti leið fram hjá og vildi svo vel til að hann var með kaðal meðferðis sem hann gat látið síga niður til hennar.
NT hefur eftir sjónarvotti að konan hafi ríghaldið í kaðalinn, sem hafi verið bundinn við bíl sem var notaður til að draga hana upp. Þetta tók um 45 mínútur að sögn sjónarvottsins sem sagði einnig að holan hafi verið full af bleium, saur og þvagi.
Konan var flutt á sjúkrahús. Hún hafði ekki meiðst alvarlega að sögn lækna.