fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Konan sem giftist föður sínum rýfur þögnina um stöðu sína í dag

Pressan
Þriðjudaginn 28. apríl 2026 07:30

Feðginin saman árið 2018.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona sem giftist föður sínum og vakti heimsathygli í kjölfarið hefur nú stigið fram í viðtali um stöðu sína í dag. Hún vandar líffræðilegum föður sínum ekki kveðjurnar og segir hann hafa misnotað stöðu sína gróflega gagnvart henni á sínum tíma.

Samantha Kershner var 17 ára þegar hún hitti líffræðilegan föður sinn, Travis Fieldgrove, í fyrsta sinn.

Það gerðist eftir að Samantha varð forvitin um uppruna sinn og aðstoðaði móðir hennar hana að komast í samband við Travis. Óhætt er að segja að eitt hafi leitt af öðru í sambandi þeirra feðgina og áður en langt um leið voru þau farin að stunda kynlíf reglulega.

Í september 2018 gengu þau síðan í hjónaband, en um svipað leyti hófu yfirvöld í Nebraska rannsókn á málinu vegna gruns um sifjaspell.

Málið vakti mikla athygli. Fieldgrove var dæmdur í fangelsi í janúar 2020 eftir að hafa játað sakargiftir um tilraun til sifjaspella. Á sama tíma gerði Kershner samkomulag við saksóknara sem varð til þess að ákæra gegn henni var felld niður.

Í dag segist Kershner ekki hafa nein samskipti við föður sinn. „Alls ekki. Ég tala við engan úr þeirri hlið fjölskyldunnar,“ segir hún í viðtali við Daily Mail.

Hún segir jafnframt að hann hafi nýtt sér reynsluleysi hennar sem óharðnaður unglingur og beitt hana blekkingum. „Ég er á miklu betri stað núna,“ bætir hún við.

Hún býr nú með dóttur sinni og unnusta í dreifbýli í Nebraska og hefur lýst núverandi unnusta sínum sem yndislegum manni. Hún segist hlakka til að gifta sig á næsta ári og segir hann koma vel fram við hana og dóttur hennar.

Á meðan hefur Fieldgrove haldið áfram að komast í kast við lögin. Hann var dæmdur í þriggja ára fangelsi í nóvember 2025 fyrir að hafa hótað ofbeldi, en hann hafði áður verið sakfelldur fyrir sambærileg brot, meðal annars árið 2021 og 2014.

Samkvæmt gögnum á hann að baki langa sakaskrá sem nær aftur til tíunda áratugarins og inniheldur meðal annars þjófnað, heimilisofbeldi og akstur undir áhrifum.

Þá kemur fram í dómsskjölum að hann var árið 1999 ákærður fyrir kynferðisbrot gegn 15 ára stúlku. Málinu lauk síðar með samkomulagi sem hann gerði við saksóknara og afplánaði hann fangelsisdóm vegna málsins.

Rannsókn á sambandi þeirra Kershner og Fieldgrove leiddi síðar í ljós að faðernispróf staðfesti með 99,999 prósenta líkum að hann væri líffræðilegur faðir hennar, þrátt fyrir að hann væri ekki skráður sem slíkur á fæðingarvottorði hennar þegar þau gengu í hjónaband.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur varar fólk við að steikja beikon í airfryer

Sérfræðingur varar fólk við að steikja beikon í airfryer