fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Eyjan

Halla Hrund Logadóttir: Meiri samvinnu, minni pólitík – þarf að vera skikk á hlutunum

Eyjan
Sunnudaginn 26. apríl 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórnarandstaðan ber sína ábyrgð á því að þingstörf gangi vel. Nýr formaður Framsóknarflokksins er í góðu samstarfi við þingflokkinn og Framsóknarmenn eru að þétta raðirnar eftir sáran kosningaósigur í þingkosningunum 2024. Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknar, leggur áherslu á meiri samvinnu og minni pólitík. Halla Hrund er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hér er hægt að hlusta á brot úr viðtalinu:

Halla Hrund Logadóttir - 3
play-sharp-fill

Halla Hrund Logadóttir - 3

Það kom fram mikil gagnrýni á forystu Framsóknarflokksins eftir kosningarnar, skiljanlega, eftir sjö ára ríkisstjórn sem er einhver sú óvinsælasta sem hefur setið og flokkurinn fékk þessa útreið. Maður hefur alveg skynjað það að það séu ólíkar fylkingar í flokknum og jafnvel í þingflokknum, þó að hann sé ekki stór akkúrat núna. Hvernig er ástandið í flokknum? Maður heyrir alls konar að það sé stirt samband. Hluti þingflokksins vildi alls ekki fá Lilju sem vann formannskosninguna. Nú, hluti vildi fyrir alla muni fá hana. En hvernig er ástandið? Eru allir bara vinir og gengur formanninum vel að vinna með öllum þingflokknum?

„Formanninum gengur mjög vel að vinna með þingflokknum og það eru allir vinir, það er bara samvinnuhugsjónin sem lifir. Og ég verð að segja, ég auðvitað er ekki hluti af þessari sögu, ég þekki ekki þá sögu sem á undan er. Þannig að ég finn bara að það er verið að þétta raðirnar. Þetta tekur tíma þegar það eru breytingar, það tekur alltaf tíma að byggja upp.“

Jú, jú, það er auðvitað erfitt líka. Mér er alveg sama hvað hver segir, en það er erfitt fyrir stjórnarandstöðuflokk og formann hans að formaðurinn eigi ekki sæti á þingi. Vegna þess að ef flokkurinn er í ríkisstjórn, þá er hægt að koma formanninum inn á þing í gegnum ráðherrastól, en það er ekki hægt þegar flokkar eru í stjórnarandstöðu.

„Nei, þetta er auðvitað krefjandi staða en maður verður alltaf að spila vel úr stöðunni og formaður er að gera það í samhengi við samvinnu, hringinn í kringum landið. Og ég verð að segja sem nýr þingmaður að ég hef verið að beina öllum mínum kröftum að málefnavinnu og ég held að það sé einkennið á þingflokknum. Fólk er að leggja áherslu á það að taka málefnin og setja þau í forgrunn. Og þess vegna hef ég nýtt tímann sérstaklega til að koma áleiðis þingsályktunartillögum sem ég talaði áður fyrir.

Það þarf kannski ekki að koma neinum á óvart. Ég er að tala um orkuöryggi almennings. Ég er að tala um náttúruvernd í samhengi við svona afmörkun vindorkuvera. Ég er að tala um málefni sem snúa að jarðakaupum eða auðlindahagsmuni, jarðakaupum erlendra aðila. Þannig að þetta eru mál sem ég hef verið að ýta áfram með þingflokknum, með öðrum aðilum og ég held að sögurnar um hluti séu oft kannski háværari. En raunveruleikinn er sá að fólk er bara að reyna að vinna vinnuna og gera það vel. Og svona fyrir mitt leyti tók ég líka að mér það hlutverk að vera málsvari barna, einn af málsvörum barna. Það er sem sagt hópur þingmanna þvert á flokka, og málsvari fólks með fötlun. Þannig að það er svona hjartað í starfinu, fyrir utan síðan Norðurlandaráð og alþjóðasamvinnu, ég fer bara í það að gera gagn í gegnum þessi málefni. Þannig að ég segi meiri vinna, meiri samvinna og minni pólitík, þá ganga hlutirnir vel.“

Þú talar bara eins og Þórdís Kolbrún, meiri stjórnmál, minni pólitík.

„Ja, það er kannski einhver samhljómur þarna. Ég allavega held það séu bara svo mörg verkefni sem bíða og það er miklu farsælla að einbeita sér að því að leysa málin efnislega. Þá eykst skilvirkni í þinginu og við sem erum í stjórnarandstöðu berum líka ábyrgð á því að hlutirnir gangi vel.“

Já, já, það er sameiginleg ábyrgð allra sem þarna eru að það sé eitthvað skikk á hlutunum.

„Það sé eitthvað skikk, það skiptir máli. Og ég held að fólk bara almennt, maður þekkir það bara vel sjálfur, fólk í samfélaginu er bara að reyna að ná í börn á leikskóla og elda hakk og spaghettí og komast í gegnum daginn. Þannig að líka finn ég minna þol fyrir einhverjum pólitískum leikjum eða langloku. Þannig pólitík hugnast mér ekki. Mér finnst þetta þurfa að snúast um það að reyna að leysa vandamálin. Nú stundum eru erfið átök en þá eru þau efnisleg og málefnaleg og við þurfum að vera með augun á boltanum í því að reyna að lenda málum.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Aðalsmerki verður svikamerki

Þorsteinn Pálsson skrifar: Aðalsmerki verður svikamerki
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Eyjólfur Ármannsson: Skaðar ekki EES-samninginn að kjósa um framhald viðræðna – EES er norskt batterí

Eyjólfur Ármannsson: Skaðar ekki EES-samninginn að kjósa um framhald viðræðna – EES er norskt batterí
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyþór Eðvarðsson skrifar: Gagnrýni ráðherra á ETS er óábyrg og verri en að „pissa í skóinn“ – Röng nálgun á raunverulegt vandamál

Eyþór Eðvarðsson skrifar: Gagnrýni ráðherra á ETS er óábyrg og verri en að „pissa í skóinn“ – Röng nálgun á raunverulegt vandamál
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyjólfur Ármannsson: Myndi vilja sjá það sama hjá okkur og á Möltu

Eyjólfur Ármannsson: Myndi vilja sjá það sama hjá okkur og á Möltu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við fjölbreytileikann

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við fjölbreytileikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Litli ljóti gráðugi leigusalinn

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Litli ljóti gráðugi leigusalinn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Vælandi út af öllu – verður Guðrúnu ýtt út á næsta landsfundi?

Orðið á götunni: Vælandi út af öllu – verður Guðrúnu ýtt út á næsta landsfundi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Umsögn Landskjörstjórnar með öllu marklaus – Bara spurning um ásetning eða vanþekkingu

Þorsteinn Pálsson: Umsögn Landskjörstjórnar með öllu marklaus – Bara spurning um ásetning eða vanþekkingu
Hide picture