

Glódís Perla Viggósdóttir skrifaði sig á spjöld sögunnar um liðna helgi þegar hún varð landsleikjahæsti leikmaður í sögu kvennalandsliðsins.
Glódís bætti metið í 1-0 tapi gegn Englandi á laugardag en Glódís hefur undanfarin ár verið ein besta knattspyrnukona í heimi.
Stelpurnar fögnuðu Glódísi inni í klefa eftir leik en það hefur pirrað einhverja. „Kannski ekki það fín úrslit að þú sprengir konfetti inn í klefa eftir leik,“ sagði Kristján Óli Sigurðsson í Þungavigtinni í dag.

Mikael Nikulásson fyrrum þjálfari KFA tók í sama streng í þættinum. „Þær voru illa glaðar inni í klefa, þær töpuðu leiknum. Ég veit að seinni hálfleikur var fínn, loksins voru breytingar á liðinu og ungar stúlkur settar inn. Tekur út stelpur sem hafa bara verið inni út af nafninu, ég var ánægður með nálgunina hjá Steina. Þær tapa leiknum og þú fagnar þá ekki.“

Mikael gagnrýnir ekki Glódísi og segir hana siguvegara en efast um svona gleðskap eftir tapleik.
„Þær voru bara glaðar inni í klefa og klappa fyrir Glódísi, hún með ræðu. Þær voru að tapa leiknum, ég veit að Glódís hatar að tapa enda er hún í Bayern. Ég veit að þær spiluðu vel og ég er ánægður með Steina, þær töpuðu og þá ertu ekki sátt eftir leik.“
„Ég skildi þetta ekki.“