

Curtis Jones lét erkifjendur Everton heyra það eftir dramatískan sigur Liverpool í Merseyside-slagnum.
Það stefndi allt í jafntefli á Hill Dickinson leikvanginum, en Virgil van Dijk tryggði Liverpool sigur með skalla í uppbótartíma. Markið reyndist þungt högg fyrir Everton sem er í baráttu um Evrópusæti.
Jones lmaoo 😭 pic.twitter.com/jQ26ftW4bi
— Bradley (@BradleyLFC24v3) April 19, 2026
Everton hefði með sigri getað stokkið upp í sjötta sæti og minnkað bilið í Liverpool verulega, en í staðinn situr liðið eftir í tíunda sæti og er nú átta stigum á eftir nágrönnum sínum þegar fimm leikir eru eftir.
Eftir leikinn gerði Jones lítið úr vonum Everton og benti á að það sýndi muninn á félögunum að stuðningsmenn og leikmenn þeirra hefðu séð það sem afrek að reyna að ná Liverpool.
Jones, sem er uppalinn í Liverpool, sparaði því ekki stóru orðin eftir mikilvægan sigur liðsins.