fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Oliver Heiðarsson mættur Í KA

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 13:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnudeild KA hefur borist gríðarlegur liðsstyrkur en Oliver Heiðarsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við félagið en hann gengur í raðir KA frá króatíska stórliðinu Lokomotiva Zagreb.

Keflavík, Valur, Breiðablik og fleiri lið vildu Oliver sem valdi aðf ara Í KA.

Oliver sem er 25 ára gamall er öflugur sóknarmaður sem leikur iðulega á hægri kanti gekk í raðir Lokomotiva Zagreb eftir síðasta sumar en hann vakti verðskuldaða athygli er hann fór fyrir liði ÍBV sumrin 2023 til 2025 en á þeim tíma tryggði ÍBV sér sæti í efstudeild á ný og var spútniklið deildarinnar í fyrra. Þar áður lék hann með FH sumrin 2021 og 2022 en Oliver sem er uppalin í Þrótti Reykjavík hóf meistaraflokksferil sinn í Laugardalnum.

Faðir Olivers er enginn annar en norðlendingurinn Heiðar Helguson sem gerði garðinn frægan með Watford, Fulham, Bolton, QPR og Cardiff í enska boltanum auk þess að leika 55 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og á Oliver því ekki langt að sækja knattspyrnuhæfileikana.

„Það er óhætt að fullyrða að koma Olivers norður mun styrkja okkar öfluga lið enn frekar og hlökkum við til að sjá til hans í gula og bláa búningnum í sumar. Oliver mætti norður í dag og kemur því strax inn í leikmannahópinn en næsti leikur KA er heimaleikur á föstudaginn gegn Íslandsmeisturum Víkings,“ segir á vef KA.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool