

Gamalt innlegg Gary Neville á samfélagsmiðlinum X hefur vakið athygli eftir að fyrirtæki hans keypti YouTube-rásir Mark Goldbridge.
Fyrr í vikunni var tilkynnt að fjölmiðlafyrirtæki Neville, The Overlap, hefði keypt rásirnar „The United Stand“ og „That’s Football“ fyrir óuppgefna sjö stafa fjárhæð.
Eftir kaupin hafa stuðningsmenn grafið upp gamalt svar Neville frá því fyrir þremur árum. Þá spurði aðdáandi hvort Goldbridge myndi einhvern tímann koma fram í þáttum The Overlap. Neville svaraði stutt og laggott: „nei“.
Nú, þremur árum síðar, virðist afstaða hans hafa breyst verulega, þar sem hann hefur fjárfest í starfsemi Goldbridge og gert hann að lykilaðila í uppbyggingu miðilsins.
Goldbridge mun halda áfram að stýra efni beggja rása, sem samanlagt eru með um 3,7 milljónir áskrifenda. Þá er stefnt að frekari stækkun og þróun efnisins.
Málið hefur vakið mikla athygli og þykir mörgum kaldhæðnislegt í ljósi fyrri ummæla Neville.