
Antoine Semenyo, leikmaður Manchester City, greinir frá því að hann hafi á ný orðið fyrir barðinu á kynþáttaníði.
Hann birtir skilaboð á samfélagsmiðlum þar sem hann sýnir frá hatursfullum skilaboðum sem bárust honum. „Þetta er byrjað aftur,“ skrifaði hann.
Semenyo varð einnig fyrir kynþáttaníði fyrr á tímabilinu þegar hann lék með Bournemouth gegn Liverpool. Þá var maður handtekinn og ákærður, en hann neitaði sök fyrir dómi.
Manchester City hefur lýst yfir fullum stuðningi við leikmanninn, en málið er því miður eitt af mörgum sem hafa komið upp í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.