
Hugo Ekitike, framherji Liverpool, verður frá keppni í 9–12 mánuði eftir að hafa slitið hásin. Þetta kemur fram í erlendum miðlum í morgunsárið.
Ekitike meiddist illa í leiknum gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni í gær, þar sem Liverpool féll úr leik, og var borinn af velli eftir aðeins 22 mínútur.
Eðli meiðslanna eru nú komin í ljós og þýða tíðindin að hann missir af HM í sumar. Mikið áfall fyrir Ekitike, Liverpool og franska landsliðið.
Ekitike gekk til liðs við Liverpool síðasta sumar og hefur átt sterkt fyrsta tímabil, er kominn með 17 mörk og sex stoðsendingar í öllum keppnum.