fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Glódís: „Við erum að spila á móti virkilega góðu liði“

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 13. apríl 2026 16:00

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska kvennalandsliðið leikur gegn Úkraínu í afar mikilvægum leik í undankeppni HM annað kvöld.

Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og þarf Ísland að sækja þrjú stig í baráttunni um þriðja sæti undanriðilsins, en það hefur mikið að segja um framhaldið í umspili um sæti á HM. Þangað hefur Ísland aldrei komist áður.

„Ég er spennt. Það er gaman að spila á heimavelli fyrir framan okkar fólk og á móti Úkraínu. Þær eru með hörkulið, mjög aggresívar og verður mjög mikilvægt fyrir okkur að vera klárar í þetta verkefni. Við þurfum að spila vel út úr pressunni þegar þær stíga upp. Við erum að spila á móti virkilega góðu liði,“ sagði Glódís Perla Viggósdóttir landsliðsfyrirliði á blaðamannafundi í dag.

„Við erum með markmið um að komast á HM og það gefur okkur bestu möguleikana að ná öðru eða þriðja sæti. Við munum gefa allt í þennan leik og þetta eru leikirnir fyrir fram sem við horfum í að ná í stig. Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur.“

Leikurinn hefst klukkan 18:30 annað kvöld. Ísland mætir svo Evrópumeisturum Englands, einnig hér á landi, á laugardag og ljóst er að það verður allt öðruvísi verkefni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool