fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Guardiola hrósar Arsenal í hástert fyrir einvígið um næstu helgi – „Besta liðið á Englandi og í Evrópu“

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 13. apríl 2026 14:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester City tekur á móti Arsenal í leik sem gæti haft gríðarlega mikla þýðingu fyrir titilbaráttuna á Englandi á sunnudag.

Arsenal hefur gengið illa síðustu vikur. Liðið tapaði úrslitaleik deildabikarsins gegn Manchester City, tapaði gegn Southampton í 8-liða úrslitum bikarsins, vann að vísu Sporting í Meistaradeildinni en tapaði svo á heimavelli gegn Bournemouth í deildinni.

Skytturnar eru með sex stiga forskot á toppnum en City á leik til góða og sem fyrr segir mætast liðin á sunnudag.

Þar gætu hlutirnir snúist við. Pep Guardiola, stjóri Manchester City, hlóð Arsenal og Mikel Arteta lofi eftir stórsigur sinna manna á Chelsea í gær.

„Arsenal hefur tapað þrisvar yfir 49 leiki og aldrei í Meistaradeildinni. Þeir hafa verið besta liðið á Englandi og í Evrópu það sem af er,“ sagði hann.

„Að vinna þá einu sinni er mjög erfitt, hvað þá tvisvar á nokkrum vikum,“ bætti hann við og á þar við úrslitaleik deildabikarsins sem City vann.

Arsenal mætir Sporting í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á miðvikudag áður en kemur að leiknum við City. Hefur það áhrif?

„Ég myndi elska að vera að fara að spila í miðri viku. Ég myndi elska að vera í stöðu Arsenal,“ sagði Guardiola.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool