fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Efasemdir innan raða Liverpool um hvort að sá eftirsótti hafi það sem til þarf

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 13. apríl 2026 10:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool hefur verið orðað við kaup á miðjumanninum Adam Wharton frá Crystal Palace í sumar, en efasemdir eru sagðar uppi um leikstíl hans samkvæmt Daily Mail.

Wharton, sem er 22 ára gamall enskur landsliðsmaður, hefur slegið í gegn síðan hann kom til Palace frá Blackburn árið 2024 og þykir í dag með betri miðjumönnum ensku úrvalsdeildarinnar.

Fjöldi félaga fylgist með honum, þar á meðal Manchester United, Chelsea og Tottenham og gæti verðmiðinn farið upp í allt að 80 milljónir punda.

Liverpool hefur sem fyrr segir einnig verið nefnt til sögunnar en samkvæmt nýjustu fréttum hafa menn innan félagsins þó áhyggjur af líkamlegum styrk og hlaupagetu Wharton, einnig hvort hann henti liði sem vill mikið halda í boltann.

Það er því ekki ljóst hvort Liverpool láti yfir höfuð til skarar skríða varðandi Wharton í sumar, en ljóst er að einhver félög munu reyna við kappann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool