fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Pressan

Krúttlega ástæðan fyrir því að utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefur sést í of stórum skóm – „Þetta er drepfyndið“

Pressan
Fimmtudaginn 12. mars 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefur verið staðinn að því að ganga í alltof stórum skóm. Þegar betur var að gáð reyndust fleiri úr ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta vera í sama skótauinu og margir veltu því fyrir sér hvers vegna. Eru þetta bestu skórnir fyrir hægrimenn í dag? Er þetta einhver tíska sem er að ganga í Hvíta húsinu? Svarið reyndist nokkuð einfalt. Allir þessir aðilar fengu skóna að gjöf frá sjálfum forsetanum.

Mögulega geta margir tengt við þá fullyrðingu að skór séu ekki alltaf heppileg gjöf. Það er í það minnsta reynsla blaðamanns sem er með óvenjulega fætur. Skór sem passa á lengdina eru gjarnan of þröngir yfir tábergið og eins virðast skófyrirtæki ekki fara öll eftir stöðluðum stærðum. Hjá einu fyrirtæki þarf maður kannski skó nr. 40, en hjá næsta fyrirtæki nr. 39 og svo hjá því þriðja nr. 42 fyrir einhverja ástæðu.

Skógjöf forsetans mun samkvæmt The Cut byggja á einstöku dálæti hans á svokölluðum Florsheim-skóm. Þessir skór munu vera á skynsamlegu verði og hefur forsetinn tekið ástfóstri við þá. Vildi hann deila þessari gleði með sínum nánustu samstarfsmönnum og sendi þeim því sína eigin Florsheim-skó. Mögulega eru einhverjir að naga sig í handabökin fyrir að hafa hrósað forsetanum fyrir skóna án þess að innistæða væri fyrir því. Hvað sem því líður þá má nú gjarnan sjá heilu hópana af körlum úr ríkisstjórninni sem allir eru í Florsheim-skónum sínum. Þar með talinn áðurnefndur Marco Rubio, sem var þó svo óheppinn að fá Florsheim-skó sem eru of stórir á hann.

hmm

[image or embed]

— derek guy (@dieworkwear.bsky.social) 11 March 2026 at 09:02

Í samtali við The Wall Street Journal segir einn ónefndur starfsmaður Hvíta hússins: „Þetta er drepfyndið því allir eru of hræddir til að klæðast þeim ekki.“ Því hefur Rubio látið sig hafa það að drösla sér hingað og þangað í alltof stórum skóm. Líklega veit hann ekki hvar þeir eru seldir, því annars hefði verið leikur einn fyrir ráðherrann að kaupa sér par sem passar. Ólíklegt verður að teljast að Trump láti samstarfsmenn sína fara úr skónum svo hann geti staðfest að þetta sé nákvæmlega parið sem hann gaf þeim.

Forsetinn sendi skóna út í desember og síðan þá hefur ítrekað sést til Rubio í þeim, einkum þegar hann er að mæta á viðburði ásamt forsetanum. The Cut deilir fjölda mynda sem hafa náðst af Rubio í Florsheim-skónum.

Wall Street Journal segir að tvennt geti skýrt hvers vegna skórnir passa ekki. Annars vegar að Rubio hafi logið um skóstærð sína til að missa ekki ímynduð karlmennskustig. Hins vegar þá þykir forsetanum víst gaman að giska á skóstærð fólks. Hann giskar á skóstærðina fyrir framan fólk og biður svo aðstoðarmann sinn um að panta par. Viku seinna kemur pakki merktur Florsheim í Hvíta húsið. Stundum skrifar Trump kveðju utan á kassann eða sendir þeim bréf með þar sem hann þakkar fyrir samstarfið. Að sögn Hvíta hússins borgar forsetinn sjálfur fyrir skógjafir sínar. Meðal þeirra sem hafa fengið Florsheim-gjöf eru, auk Rubio, JD Vance varaforseti, varnarmálaráðherrann Pete Hegseth, viðskiptaráðherrann Howard Lutnick, samskiptastjórinn Steven Cheung og ræðuritarinn Ross Worthington og fleiri.

Enginn að bóna og allir í skóm á alþjóðaefnahagsráðstefnunni í Sviss í janúar/Getty
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Sætuefni í matnum geta hugsanlega haft áhrif á afkvæmin

Sætuefni í matnum geta hugsanlega haft áhrif á afkvæmin
Pressan
Í gær

Ryanair með nýjung á öllum flugvöllum

Ryanair með nýjung á öllum flugvöllum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Blóðugur uppruni 1. maí

Blóðugur uppruni 1. maí
Pressan
Fyrir 2 dögum

Strokufanginn og fangavörðurinn – var þetta rómantískur harmleikur eða útsmogin launráð?

Strokufanginn og fangavörðurinn – var þetta rómantískur harmleikur eða útsmogin launráð?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald
Pressan
Fyrir 4 dögum

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör
Pressan
Fyrir 4 dögum

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi
Pressan
Fyrir 5 dögum

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“