fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Pressan

Maður fannst látinn í bifreið sinni – Fyrst grunaði lögreglu ekkert saknæmt en nú hefur eiginkonan verið handtekin

Pressan
Mánudaginn 9. mars 2026 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lonnie Moore, 33 ára gamall karlmaður, fannst látinn í bifreið sinni í Texas þann 15. júní. Banameinið hans var skotsár á höfði og var í fyrstu talið að Lonnie hefði fallið fyrir eigin hendi. Nú hefur eiginkona Lonnie, Breyanai Moore, verið handtekin.

Samkvæmt yfirlýsingu lögreglu bentu ummerki á vettvangi upphaflega til þess að um sjálfsvíg væri að ræða en síðar komu sönnunargögn fram í dagsljósið sem gáfu til kynna að saknæm háttsemi hefði átt sér stað.

Það tók lögreglu svo níu mánaða rannsókn til að safna nægum gögnum til að hægt væri að handtaka sakborninginn í málinu, Breyanai sem er 31 árs gömul. Breyanai sagði lögreglu við upphaf rannsóknar að hún hefði að morgni dags, þann 15. júní 2025, tilkynnt manni sínum að hún vildi skilnað. Hún sendi honum þetta með textaskilaboðum og varði degi sínum heima með fimm ára dóttur þeirra hjóna.

Það mun vera fjölskylduvinur sem greindi yfirvöldum frá því að Breyanai hafi játað að hafa skotið Lonnie. Hún hafi setið í aftursæti bifreiðarinnar, eftir að Lonnie sótti hana, og skotið mann sinn í höfuðið. Að sögn móður Lonnie mun Breyanai hafa hatað eiginmann sinn.

People greinir frá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Sætuefni í matnum geta hugsanlega haft áhrif á afkvæmin

Sætuefni í matnum geta hugsanlega haft áhrif á afkvæmin
Pressan
Í gær

Ryanair með nýjung á öllum flugvöllum

Ryanair með nýjung á öllum flugvöllum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Blóðugur uppruni 1. maí

Blóðugur uppruni 1. maí
Pressan
Fyrir 2 dögum

Strokufanginn og fangavörðurinn – var þetta rómantískur harmleikur eða útsmogin launráð?

Strokufanginn og fangavörðurinn – var þetta rómantískur harmleikur eða útsmogin launráð?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald
Pressan
Fyrir 4 dögum

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör
Pressan
Fyrir 4 dögum

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“