fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Pressan

Þetta er besta landið fyrir ellilífeyrisþega – Hægt að lifa góðu lífi fyrir 260.000 á mánuði

Pressan
Sunnudaginn 15. mars 2026 21:00

Madeira í Portúgal.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er margt sem þarf að taka afstöðu til og undirbúa áður en taka ellilífeyris hefst. Til dæmis hvar á maður að búa. Flestir velja að halda sig í því umhverfi sem þeir þekkja best en aðrir velja að pakka niður í tösku og flytja á hlýrri slóðir þar sem það er ódýrara að lifa.

International Living hefur birt niðurstöður rannsóknar á hvar er ódýrast að vera á eftirlaunum 2026.

Fram kemur að Portúgal sé góður valkostur fyrir Evrópubúa því þar sé ódýrt að lifa og það sé hægt að lifa þægilegu lífi án þess að þurfa að sætta sig við síðri innviði og þjónustu.

International Living segir að það sé hægt að spara enn meira en þá þurfi Evrópubúar að fara út fyrir álfuna sína.

Sri Lanka er efst á listanum og þar er hægt að lifa þægilegu lífi fyrir sem svarar til um 260.000 íslenskra króna á mánuði.

Einn þeirra sem hefur flutt til Sri Lanka er Roland Dalton en hann hefur búið þar í mörg ár. Í samtali við tímaritið Travel + Leisure sagði hann að inni í mánaðarlegum útgjöldum rúmist vel að leigja húsnæði nærri ströndinni, að fara á veitingastaði, ferðast um eyjuna, nudd og þátttaka í margvíslegu félagslífi.

Hann og eiginkona hans leigja einbýlishús með garði og lítilli sundlaug fyrir um 50.000 krónur á mánuði. Fyrir rafmagn og annað tengt húsinu greiða þau 6.000 krónur. Samgöngur eru að hans sögn mjög ódýrar.

Á eftir Sri Lanka koma Víetnma, Taíland, Balí í Indónesíu og Malasía.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Stærsti kakóframleiðandi heims stendur frammi fyrir miklum vanda

Stærsti kakóframleiðandi heims stendur frammi fyrir miklum vanda
Pressan
Fyrir 2 dögum

Stal AirPods – Hefði betur sleppt því

Stal AirPods – Hefði betur sleppt því
Pressan
Fyrir 2 dögum

Marjorie Taylor Greene með hrollvekjandi viðvörun varðandi Trump – „Ég held að hann sé ekki að grínast“

Marjorie Taylor Greene með hrollvekjandi viðvörun varðandi Trump – „Ég held að hann sé ekki að grínast“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þessar plöntur elska kaffikorg – Vaxa hraðar, verða sterkari og fallegri

Þessar plöntur elska kaffikorg – Vaxa hraðar, verða sterkari og fallegri
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þessar bílategundir eru líklegastar til að ná 400.000 kílómetrum

Þessar bílategundir eru líklegastar til að ná 400.000 kílómetrum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þess vegna ruglumst við á nöfnum ástvina okkar

Þess vegna ruglumst við á nöfnum ástvina okkar