fbpx
Laugardagur 11.apríl 2026
Fréttir

Búist við hækkun stýrivaxta á morgun: „Metum það þannig að nefndin sé nauðbeygð til að hækka vexti“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 17. mars 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Greiningaraðilar búast við því að stýrivextir hækki á morgun þegar peningastefnunefnd Seðlabankans kynnir vaxtaákvörðun sína.

„Horfurnar hafa versnað hratt,“ segir Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur í samtali við Morgunblaðið í dag og bætir við að verðbólguvæntingar hafi færst enn lengra frá markmiðinu.

„Með því að bregðast ekki við því með hækkun vaxta væri peningastefnunefndin í raun að segja að þrátt fyrir þetta þurfi minna aðhald að peningastefnunni,“ segir hann.

Stýrivextir í dag eru 7,25 prósent og spáir greiningarfyrirtækið Reitun að vextir muni hækka um 0,25%. Þó sé hægt að færa rök fyrir því að þeir gætu hækkað um 0,5%.

„Þótt enginn vilji fá hærri vexti þá metum við það þannig að nefndin sé nauðbeygð til að hækka vexti,“ segir Konráð.

Spáin er í takt við aðrar spár og telur Landsbankinn til dæmis að stýrivextir muni hækka um 0,25%. Þó að verðbólga hafi haldist óbreytt í febrúar hafi sviptingar á alþjóðamörkuðum aukið verðbólguþrýsting og verðbólguvæntingar, þá helst hækkun olíuverðs vegna stríðsátakanna í Mið-Austurlöndum.

„Við teljum líklegt að peningastefnunefnd horfi sérstaklega til þess við næstu ákvörðun og hækki því vexti,“ segir í hagsjá Landsbankans sem birtist í síðustu viku.

Íslandsbanki spáir einnig hækkun stýrivaxta um 0,25%.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Ekki í fyrsta sinn sem mistök eiga sér stað við birtingu andlátstilkynninga

Ekki í fyrsta sinn sem mistök eiga sér stað við birtingu andlátstilkynninga
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Krefjast þess að fá sæti við borðið eftir tilkynningu ríkisstjórnarinnar – „Við verðum ekki hunsuð“

Krefjast þess að fá sæti við borðið eftir tilkynningu ríkisstjórnarinnar – „Við verðum ekki hunsuð“