fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fókus

Þetta verður fyrsti viðburður Þjóðaróperunnar

Jakob Snævar Ólafsson
Fimmtudaginn 5. mars 2026 12:13

Hof á Akureyri. Mynd/SinfoniaNord

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Opinberað hefur verið hver verður allra fyrsti viðburður á vegum Þjóðaróperunnar sem nýlega tók til starfa en um er að ræða viðamikla dagskrá sem sýnd verður víða um land en frumsýningin verður í Hofi á Akureyri.

Áður hafði verið greint frá því að fyrsta stóra óperuuppfærslan á vegum Þjóðaróperunnar verður í Hörpu á næsta ári en fyrir valinu varð ópera Giuseppe Verdi, Falstaff.

Þjóðaróperan er hluti af Þjóðleikhúsinu en á Facebook-síðu leikhússins er vitnað í viðtal Morgunblaðsins við Finn Bjarnason óperustjóra en þar fjallar hann um þennan opnunarviðburð Þjóðaróperunnar en greint er nánar frá efni viðburðarins á vef Þjóðleikhússins.

Þar segir að frumsýningin verði í Hofi á Akureyri næsta haust en nánari dagsetning er ekki nefnd. Í framhaldinu verði viðburðurinn fluttur víðar um land, m.a. á Egilsstöðum og að endingu í Reykjavík. Sé þetta í takt við stefnu hinnar nýju Þjóðaróperu en lagt sé upp með að starfsemin verði um allt land – enda sé hún ópera þjóðarinnar allrar.

Opnunarviðburðurinn muni samanstanda af skemmtilegri dagskrá þar sem Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, einsöngvarar, kórar og leikarar muni leiða áheyrendur meðfram helstu vörðum óperusögunnar og tengja við mikilvæg tímamót í íslenskri menningar- og hugmyndasögu.

Á tónleikunum muni m.a. koma fram nýráðnir söngvarar óperunnar en hverjir það verði liggi ekki fyrir að svo stöddu því ekki hafi enn verið ráðið í stöðurnar. Leikarar Þjóðleikhússins muni einnig taka þátt. Ólafur Egilsson muni leikstýra dagskránni í Hofi sem verði vegleg og skemmtileg en miðasala verði auglýst síðar.

Að sögn Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar tónlistarstjóra Menningarfélags Akureyrar, sé það einstakt gleðiefni að þessi viðburður verði í Hofi á Akureyri og gefi skýrt til kynna að óperan ætli sér að standa undir nafni.

Segir að lokum að sýningin sé framleidd í samstarfi við Menningarfélagið sem rekur Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Leikfélag Akureyrar og Menningarhúsið Hof, en öll svið félagsins taki þátt í sköpun og framkvæmd þessarar opnunarsýningar Þjóðaróperunnar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends
Fókus
Fyrir 3 dögum

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna
Fókus
Fyrir 5 dögum

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni
Fókus
Fyrir 5 dögum

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“
Fókus
Fyrir 1 viku

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“
Fókus
Fyrir 1 viku

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum