fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Djúp lægð nálgast og hríðarveður á suðvesturhorninu í kvöld

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 5. mars 2026 08:00

Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gular viðvaranir hafa verið gefnar út vegna hríðar á suðvesturhorni landsins seint í kvöld. Viðvaranirnar gilda fyrir Suðurland og Faxaflóa og gilda frá klukkan 12 á miðnætti til þrjú í nótt.

Veðurstofan gerir ráð fyrir suðaustan 18 til 23 metrum á sekúndu með snjókomu eða slyddu. „Slæmt skyggni og léleg akstursskilyrði,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir meðal annars:

„Suðlæg átt með éljum sunnan- og vestantil á landinu í dag, en bjartviðri norðaustanlands. Vindur verður óvíða meiri en 10 m/s og því litlar líkur á skafrenningi, en skyggnið getur þó verið slæmt meðan élin ganga yfir. Hiti kringum frostmark yfir daginn, en frost 0 til 5 stig á Norðaustur- og Austurlandi.

Í kvöld nálgast alldjúp lægð úr suðvestri og það hvessir af suðaustri. Í nótt er gert ráð fyrir hríð um tíma sunnan- og vestanlands og hafa gular viðvaranir verið gefnar út fyrir Suðurland og Faxaflóa.“

Að sögn veðurfræðings verður lægðin fyrir vestan land á morgun, föstudag, og er þá búist við sunnan hvassviðri eða stormi og úrkomu um mest allt land, ýmist í formi slyddu, rigningar, eða élja.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag:
Sunnan- og suðaustan 15-23 m/s með slyddu eða rigningu, einkum sunnan- og vestantil. Hiti 0 til 6 stig.

Á laugardag:
Hvöss suðvestanátt og él, en þurrt að kalla á norðaustanverðu landinu. Hiti 0 til 4 stig.

Á sunnudag:
Suðvestlæg átt, víða 5-13 m/s og él vestantil, en þurrt austanlands. Frost 0 til 5 stig, en sums staðar frostlaust við sjóinn.

Á mánudag:
Vaxandi sunnanátt með snjókomu, en síðar slyddu eða rigningu. Hlýnandi veður, en að mestu bjart norðaustantil.

Á þriðjudag:
Suðaustanátt og rigning eða slydda suðaustantil, en lengst af þurrt annars staðar. Hiti 1 til 7 stig.

Á miðvikudag:
Útlit fyrir breytilega átt með úrkomu í flestum landshlutum. Ívið svalara.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Gróf upp látna systur sína og gekk með hana þriggja kílómetra leið

Gróf upp látna systur sína og gekk með hana þriggja kílómetra leið
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Sláandi þróun meðal íslenskra ungmenna – Ofbeldi, ójafnrétti, persónunjósnir, klám og leynilegir nektarmyndahópar

Sláandi þróun meðal íslenskra ungmenna – Ofbeldi, ójafnrétti, persónunjósnir, klám og leynilegir nektarmyndahópar
Fréttir
Í gær

Jón Pétur dregur í land – „Ég tel hvorki jafnrétti, menntun né frelsi kvenna vera vandamál“

Jón Pétur dregur í land – „Ég tel hvorki jafnrétti, menntun né frelsi kvenna vera vandamál“
Fréttir
Í gær

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“