fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Eigandinn skrautlegi sýndi áhuga bara því Manchester City sýndi áhuga – ,,Hafði ekki hugmynd um hvernig ég ætti að dæma fótboltamann“

Victor Pálsson
Þriðjudaginn 3. mars 2026 18:30

Todd Boehly, eigandi Chelsea, á leik Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Todd Boehly, meðeigandi Chelsea, er skrautlegur karakter en hann hefur þurft að takast á við alls konar verkefni eftir að hafa eignast hlut í félaginu.

Boehly er fyrst og fremst viðskiptamaður og ekki of mikill knattspyrnuaðdáandi en félag hans Clearlake Capital eignaðist stóran hlut í Chelsea 2022.

Milljarðamæringurinn hefur þurft að takast á við ýmis vandamál eftir komuna en Chelsea hefur keypt og selt fjölmarga leikmenn síðustu mánuði og ár.

Boehly þurfti sjálfur að taka að sér hlutverk yfirmanns knattspyrnumála á sínum tíma þegar verið var að byggja félagið upp á nýtt.

Hann átti til að mynda stóran þátt í að kaupa bakvörðinn Marc Cucurella frá Brighton.

,,Í þeirri stöðu sem félagið var í þegar við tókum yfir þar sem nánast allir í stjórninni höfðu yfirgefið félagið þá neyddist ég til að verða yfirmaður knattspyrnumála,“ sagði Boehly.

,,Ég hafði ekki hugmynd um hvernig ég ætti að dæma góðan fótboltamann en ég vissi hins vegar að Manchester City væri á eftir Cucurella og þá vildi ég hann, það er mjög einfalt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool