fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fókus

Kynlífsstellingin sem konur virðast hata en karlar elska

Fókus
Miðvikudaginn 4. mars 2026 06:30

Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ein umdeild kynlífsstelling hefur vakið athygli og umtal á samfélagsmiðlum síðustu daga, þar sem karlar og konur skiptast á skoðunum um ágæti hennar.

Um er að ræða svokallaða „reverse cowgirl“ stellingu, þar sem annar aðilinn liggur á bakinu á meðan hinn situr ofan á og snýr baki í makann.

Í umfjöllun Metro kemur fram að samkvæmt umræðum á netinu telji sumir stellinguna vera spennandi tilbreytingu og ákveðið krydd í tilveruna.

Hún býður upp á breytt sjónarhorn og krefst minni líkamlegrar áreynslu af þeim sem liggur niðri. Aðrir lýsa hins vegar yfir óánægju.

Konur hafa sérstaklega bent á að stellingin geti verið líkamlega óþægileg og jafnvel valdið óöryggi – svo ekki sé talað um útsýnið þar sem fætur makans og í versta falli illa klipptar táneglur blasa við.

Sumir nefna að skortur á augnsambandi og snertingu dragi úr nánd og tengingu.

Kynlífsráðgjafinn Cate Campbell segir að upplifun fólks sé mjög einstaklingsbundin. Í samtali við Metro bendir hún á að það að snúa baki í makann geti verið stórt atriði fyrir suma.

„Sumir upplifa sig dálítið notaða, sérstaklega ef þeir finna ekki mikla líkamlega ánægju í stöðunni,“ segir hún. Að hennar sögn getur tilfinningaleg fjarlægð haft áhrif á upplifunina ekki síður en líkamlegir þættir.

Campbell nefnir einnig að ákveðnar stellingar geti aukið líkur á meiðslum ef hreyfingar eru snöggar eða stjórnlausar. Í „reverse cowgirl“ geti álag á getnaðarliminn orðið meira en í sumum öðrum stellingum, sem í undantekningartilvikum geti leitt til alvarlegra meiðsla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 6 dögum

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“
Fókus
Fyrir 1 viku

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna
Fókus
Fyrir 1 viku

Komst að leyndarmáli kærustunnar með falinni myndavél

Komst að leyndarmáli kærustunnar með falinni myndavél
Fókus
Fyrir 1 viku

Vera hljóp allar göturnar í Reykjavík

Vera hljóp allar göturnar í Reykjavík
Fókus
Fyrir 1 viku

Auglýsir fötin af sér í heimsóknum til krabbameinsgreindra barna og eftirlifenda hatursárásar á Bondi Beach – „Drottningin hlýtur að vera að velta sér í gröfinni“

Auglýsir fötin af sér í heimsóknum til krabbameinsgreindra barna og eftirlifenda hatursárásar á Bondi Beach – „Drottningin hlýtur að vera að velta sér í gröfinni“
Fókus
Fyrir 1 viku

Mágkona skvetti svartri málningu yfir brúðina og hljóp svo í burtu

Mágkona skvetti svartri málningu yfir brúðina og hljóp svo í burtu