fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Beitti eiginkonu sína viðurstyggilegu ofbeldi – Seld til á annað hundrað manna

Pressan
Mánudaginn 16. febrúar 2026 21:30

Sænskir lögreglumenn við störf. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður situr nú í gæsluvarðhaldi í Svíþjóð vegna gruns um að hafa selt yfir hundrað öðrum karlmönnum aðgang að líkama eiginkonu sinnar.

Maður og konan búa í Ångermanland-héraði í norðurhluta landsins.

Samkvæmt umfjöllun Aftonbladet leikur grunur á að brot mannsins gegn konunni hafi staðið yfir síðustu þrjú ár. Saksóknari segir að um umfangsmikla og grimmilega misnotkun á konunni sé að ræða. Hafa brotin gegn konunni bæði farið fram í gegnum internetið og með því að hún hitti menn sem hafa greitt manni hennar fyrir það.

Það mun hafa verið konan sjálf sem tilkynnti um brotin gegn henni til lögreglu. Er talið ljóst að það hafi ekki verið hennar vilji að stunda kynferðislegt athæfi með öllum þessum mönnum.

Karlmaðurinn er á sjötugsaldri en aldurs konunnar er ekki getið. Hann var handtekinn í október síðastliðnum en saksóknari segir hann hafa haft fjárhagslegan ávinning af því að selja konu sína í vændi. Gögnum hefur verið safnað úr símum nokkurs fjölda manna sem grunaður er um að hafa keypt aðgang að líkama konunnar.

Grunur leikur á að allt að 120 menn úr mismunandi landshlutum hafi lagt fram fé í þessu skyni. Komust þeir flestir í samband við manninn í gegnum vefsíðu sem sett hafði verið upp í þeim tilgangi að auglýsa konuna til sölu.

Til stendur að ákæra manninn í næsta mánuði. Nú þegar hefur hluti þeirra sem keypti aðgang að konunni verið ákærður en þeir eiga líklega eftir að verða fleiri.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár
Pressan
Í gær

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala
Pressan
Í gær

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“