fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Lítur ekki vel út hjá leikmanni Liverpool – Fékk súrefni og var borin af velli í gær

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 12. febrúar 2026 09:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikur Sunderland og Liverpool var stöðvaður um tíma eftir að Wataru Endo meiddist illa og þurfti að fara af velli á börum. Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, sagði eftir leik að meiðslin líti ekki vel út.

Endo, 33 ára japanskur landsliðsmaður, var að leika sinn fyrsta byrjunarliðsleik undir stjórn Slot í níu mánuði. Hann fyllti stöðu hægri bakvarðar vegna leikbanns Dominik Szoboszlai.

Í seinni hálfleik féll Endo til jarðar eftir atvik í teignum. Hann hafði þá lent illa á ökkla þegar hann var að verja fyrirgjöf. Þrátt fyrir að hafa reynt að halda áfram og klára næstu sóknarlotu varð honum fljótlega ljóst að hann gæti ekki haldið leik áfram.

Sjúkraþjálfarar og læknateymi liðsins hlupu inn á völlinn og veittu honum aðhlynningu. Meðal annars fékk hann súrefnisgrímu áður en hann var borinn af velli. Endo var sýnilega miður sín og huldi andlit sitt með treyjunni á leiðinni af velli, en áhorfendur á Stadium of Light klöppuðu honum lof í lófa.

Leikurinn tafðist um fimm mínútur og Joe Gomez kom inn á sem varamaður á 68. mínútu.

Slot sagði eftir leik. „Þetta lítur ekki vel út. Ég býst við að hann verði frá í nokkurn tíma.“ Hann hrósaði jafnframt hugarfari Endo fyrir að reyna að halda áfram og verja eina föstu leikatriðið í viðbót þrátt fyrir meiðslin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool