fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Eftir brottreksturinn er Halldór sagður vera mættur í nýtt starf – Fór í klifurvegg í Garðabænum og sá hann að störfum

433
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 20:30

Halldór Árnason, fyrrum þjálfari Breiðabliks.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halldór Árnason var rekinn úr starfi sem þjálfari Breiðabliks síðasta haust og hefur verið án starfs allt þar til núna ef marka má Kristján Óla Sigurðsson, sparkspeking.

Kristján Óli sagði frá því í Þungavigtinni í dag að Halldór væri byrjaður að starfa sem aðstoðarmaður í U19 ára landsliði karla.

Kristján sagðist hafa skellt sér í Garðabæinn á dögunum þar sem landsliðin æfa. „Ég fór í klifurvegginn þarna og sá glitta í hnakkann á Halldóri,“ sagði Kristján í þættinum.

Halldór var rekinn frá Breiðablik innan við ári frá því að hann hafði gert liðið að Íslandsmeisturum og að auki komið liðinu skömmu áður í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar.

Talið er að Halldór hafi fengið tæpar 20 milljónir í starfslokagreiðslur hjá Breiðablik, hann hafði nýlega skrifað undir nýjan samning áður en honum var sagt upp.

Þórhallur Sigurgeirsson er þjálfari U19 ára landsliðsins en hann og Halldór störfuðu á árum áður saman í yngri flokkum Stjörnunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool