
Orðið á götunni er að nokkur skjálfti sé byrjaður að myndast innan Framsóknarflokksins vegna formannskjörsins sem fram fer á landsþingi flokksins helgina 14.-15. febrúar, eða eftir rúma viku.
Eins og gjarnan gerist þegar kjósa á formann og mikið stendur til á landsfundum og stjórnmálaflokka keppast frambjóðendur um að tryggja stuðningsfólki sínu sæti og atkvæðisrétt á landsfundinum.
Nýlega völdu Framsóknarmenn í Reykjavík fulltrúa Reykjavíkurfélagsins á landsþinginu og fengu færri en vildu. Orðið á götunni er að Lilja Alfreðsdóttir hafi komið sterk inn á fundinn ásamt stuðningsfólki sínu og tryggt sér yfirgnæfandi meirihluta landsþingssæta. Haft er fyrir satt að einhverjir rótgrónir félagsmenn, jafnvel stjórnarfólk í Sambandi ungra Framsóknarmanna, hafi setið eftir með sárt ennið á meðan nýtt fólk, sem sumir segja að hafi lítil sem engin tengsl við Framsókn, hafi fengið sæti á landsþinginu.
Orðið á götunni er að urgur sé í ýmsum Framsóknarmönnum vegna þessa og að smölun af þessu tagi standi yfir í fleiri félögum innan Framsóknar. Stuðningsmenn Ingibjargar Isaksen segjast hafa áhyggjur af því að hætta sé á því að Lilja tryggir sér sigur í formannskjörinu með stuðningi landsþingsfulltrúa sem aldrei áður hafi komið á fund hjá Framsókn og ólíklegt sé að muni nokkru sinni kjósa flokkinn.
Orðið á götunni er að smölun af þessu tagi sé alls ekki nýtt fyrirbæri í stjórnmálaflokkum. Skemmst er að minnast þess að þegar Guðlaugur Þór Þórðarson skoraði Bjarna Benediktsson á hól í formannskjöri á landsfundi Sjálfstæðisflokksins 2022 var grimmt smalað og mikill slagur háður um landsfundarfulltrúa. Meðal annars vaknaði frá dauðum löngu dáið og grafið félag Sjálfstæðiskvenna í Kópavogi, Edda, og skilaði nokkrum fjölda fulltrúa á landsfundinn, sem allir studdu Bjarna.
Þá var eftir því tekið á landsfundinum 2022 að þangað mættu þjóðþekktir einstaklingar sem kunnir voru af stuðningi sínum við aðra flokka en Sjálfstæðisflokkinn. Allir mættu þeir til að kjósa Bjarna, sem fór með sigur af hólmi en fékk innan við 60% atkvæða. Margir þeir sem Bjarna kusu þennan sunnudag í nóvember höfðu aldrei verið orðaðir við Sjálfstæðisflokkinn fyrir þann dag og ekki hefur sést til þeirra í námunda við Valhöll síðan.
Orðið á götunni er að ekki hafi minna verið smalað á landsfund Sjálfstæðisflokksins á síðasta ári þegar Guðrún Hafsteinsdóttir hafði betur gegn Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur í formannskjöri. Þar hafi dúkkað upp andlit sem enginn hefur tengt við Sjálfstæðisflokkinn, hvorki fyrr né síðar.
Orðið á götunni er að báðir formannsframbjóðendurnir í Framsókn beiti nú þeim brögðum sem tiltæk eru til að reyna að tryggja sér meirihlutastuðning á landsþinginu um aðra helgi. Staðan sé tvísýn en hugsanlega verði örlög þess frambjóðanda sem tapar slagnum skárri en sigurvegarans. Næsta formanns bíði nefnilega fátt annað en að sinna skyldum útfararstjóra þessa fornfræga flokks sem var stofnaður árið 1916.