fbpx
Fimmtudagur 16.apríl 2026
433Sport

Kári feginn því í dag að fólk í Laugardalnum vildi ekki fá hann til starfa – Hefði ekki neinn áhuga á starfinu í dag

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 6. febrúar 2026 07:30

Kári Árnason. Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi hefur ekki áhuga á því að starfa sem yfirmaður knattspyrnumála hjá KSÍ. Hann sóttist eftir starfinu á árum áður.

Í löngu viðtali við Chess after Dark telur hann að KSÍ hafi gert stór mistök að hafa ekki fengið inn mann í starf sem myndi halda samfellu í starfi landsliðsins. Hann telur að sá árangur sem náðist með gullkynslóð Íslands hafi tapast og að þekkingin í Laugardalnum sé ekki lengur til staðar til að ná þeim árangri sem náðist þar.

Kári sóttist eftir starfi hjá KSÍ árið 2021 þegar Guðni Bergsson var formaður KSÍ, Arnar Þór Viðarsson hafði þá tekið við landsliðinu og Kári var að íhuga að leggja skóna á hilluna.

Þessar pælingar voru opinberar en KSÍ hafði ekki áhuga, Kári sem lék þá með Víking fór í þetta starf hjá uppeldisfélagi sínu og hefur skilað ótrúlegum árangri.

Hann var spurður að því hvort hann væri feginn í dag að hafa ekki fengið starfið. „Já, ekki spurning,“ sagði Kári.

Hann var svo spurður að því hvort hann hefði áhuga á því í dag, hann var ekki lengi að svara. „Nei,“ svaraði Kári sem lék 90 landsleiki fyrir hönd Íslands og tók þátt á EM 2016 og HM 2018.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Manchester City staðfestir tíðindin

Manchester City staðfestir tíðindin
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Er arftaki Enzo þegar að spila í ensku úrvalsdeildinni?

Er arftaki Enzo þegar að spila í ensku úrvalsdeildinni?
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Níu leikmenn gætu farið frá Liverpool í sumar

Níu leikmenn gætu farið frá Liverpool í sumar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Fyrrum markvörður Arsenal og Liverpool lést í hræðilegu bílslysi í dag

Fyrrum markvörður Arsenal og Liverpool lést í hræðilegu bílslysi í dag
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

City eltist við mjög efnilegan bakvörð

City eltist við mjög efnilegan bakvörð
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Stjarna Arsenal fékk stórfurðulega spurningu eftir að liðið komst áfram í gær – Myndband

Stjarna Arsenal fékk stórfurðulega spurningu eftir að liðið komst áfram í gær – Myndband