fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
433Sport

Sér alls ekki eftir því að hafa farið frá Liverpool

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jarrell Quansah segir að ákvörðunin um að yfirgefa Liverpool og ganga til liðs við Bayer Leverkusen hafi verið einföld.

Quansah, sem er 23 ára, fór til þýska félagsins síðasta sumar fyrir um 35 milljónir punda eftir að hafa komið upp úr akademíu Liverpool og spilað 58 leiki með aðalliðinu. Hann skrifaði undir fimm ára samning í leit að meiri spiltíma og hefur leikið 38 leiki á tímabilinu.

„Þetta snerist um hvernig þeir nálguðust mig og hversu skýr áætlunin þeirra var,“ sagði Quansah.

„Þeir höfðu fylgst vel með mér og sáu ákveðna möguleika sem passuðu við það sem ég sjálfur trúði.“

Hann segir að það hafi skipt miklu máli að félagið og hann sjálfur væru á sömu línu. „Þegar það var ljóst varð þetta einföld ákvörðun. Ég vildi einfaldlega spila meira.“

Quansah bendir á að Bundesliga sé toppdeild og að tækifærið til að spila í Meistaradeildinni hafi einnig vegið þungt.

„Það eru stórir leikir fram undan, eins og gegn Bayern Munich, og það er nákvæmlega það sem ég var að leita að,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Allt að fara yfir um í London fyrir viðburðinn í næstu viku – Ódýrasti miðinn nú á rúmar 300 þúsund krónur

Allt að fara yfir um í London fyrir viðburðinn í næstu viku – Ódýrasti miðinn nú á rúmar 300 þúsund krónur
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Spánverjar skilja margar hetjur eftir heima í sumar

Spánverjar skilja margar hetjur eftir heima í sumar
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Arnar um Aron Einar: „Síðasti leikmaðurinn sem ég þarf að vega og meta“

Arnar um Aron Einar: „Síðasti leikmaðurinn sem ég þarf að vega og meta“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Ítarlegt viðtal við Arnar Gunnlaugs: Spurður út í vonarstjörnu Íslands – „Þeir vita alveg hvar þeir eru í fæðukeðjunni“

Ítarlegt viðtal við Arnar Gunnlaugs: Spurður út í vonarstjörnu Íslands – „Þeir vita alveg hvar þeir eru í fæðukeðjunni“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Arnar velur tvo hópa fyrir komandi leiki – Tíu taka þátt í báðum

Arnar velur tvo hópa fyrir komandi leiki – Tíu taka þátt í báðum
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Myndband: Rauk út af blaðamannafundi eftir sigur í gær – „Ertu svindlari?“

Myndband: Rauk út af blaðamannafundi eftir sigur í gær – „Ertu svindlari?“
433Sport
Í gær

Birta samskipti dómara og VAR-herbergisins frá atvikinu í London um helgina – Hlustaðu á það sem gekk á

Birta samskipti dómara og VAR-herbergisins frá atvikinu í London um helgina – Hlustaðu á það sem gekk á