

Manchester City fylgist grannt með hægri bakverðinum Givairo Read hjá Feyenoord fyrir möguleg kaup í sumar.
Þrátt fyrir að City sé ekki ákveðið í að kaupa nýjan hægri bakvörð hefur staðan verið til skoðunar um nokkurt skeið. Frammistaða Matheus Nunes í þeirri stöðu, þrátt fyrir að vera miðjumaður að upplagi, hefur þó frestað ákvörðun félagsins síðustu misseri.
City hefur áður skoðað leikmenn á borð við Tino Livramento og Wesley, en ákvað að ganga ekki frá samningum á þeim tíma.
Read, sem er 19 ára og leikur með U21 landsliði Hollands, hefur verið einn af efnilegustu bakvörðum í hollensku deildinni. Hann er nú meiddur en er væntanlegur aftur á næstu vikum og verður fylgst náið með frammistöðu hans út tímabilið.
Fleiri stórlið hafa einnig sýnt honum áhuga, þar á meðal Bayern Munich.
City er jafnframt að skoða möguleika á að styrkja miðjuna og sóknarlínuna, en búist er við breytingum á leikmannahópi félagsins í sumar.