fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
433Sport

Þór og Víkingur sektuð um væna summu af KSÍ – „Enginn gerði athugasemd við að þeir væru með blys með sér“

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 14:53

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á fundi aga- og úrskurðarnefndar þann 14. apríl voru kveðnir upp tveir úrskurðir vegna notkunar blysa á áhorfendasvæðum í Bestu deild karla.

Víkingur fékk sekt að fjárhæð kr. 150.000,- fyrir tvö blys stuðningsmanna í leik gegn Breiðablik. Þór fékk sekt að fjárhæð kr. 250.000,- fyrir fjögur blys stuðningsmanna í leik gegn Val.

Í dómnum gegn Þór segir:
Þór var veittur kostur á að skila athugasemdum við skýrslu eftirlitsmanns og þann 14. apríl bárust svör frá félaginu þar sem eftirfarandi kom fram:

„Við þökkum ábendinguna vegna stuðningsmanna okkar á leik Vals gegn Þór þann 12.apríl 2026. Við sáum ekki um skipulagningu og var ekki kunnugt um hvaða áhöld okkar stuðningsmenn myndu notast við til að styðja okkar lið í umræddum leik. Við sjáum ekki um gæslu á útileikjum okkar og getum við því ekki svarað fyrir hvers vegna gæslumenn á vellinum ræddu ekki við okkar stuðningsmannahóp. Við höfum nú, í kjölfar skýrslunnar sem þið senduð okkur, rætt við stuðningsmannahópinn og samkvæmt því samtali var enginn, hvorki vallarstarfsmenn né gæslumenn, sem komu að máli við stuðningsmannahóp okkar og gerðu athugasemd við að þeir væru með blys með sér.

Einnig getum við ekki fundið í reglugerðum KSÍ neinar leiðbeiningar eða reglur um hvað stuðningsmannahópar mega bera með sér í stúku og hvað má ekki. Því óskum við einnig eftir því að fá það á hreint frá ykkur og í kjölfarið munum við ræða við okkar hóp. Við höfum þegar rætt við hópinn um að þetta verði ekki endurtekið. Þá er rétt að taka fram, í ljósi þess að í skýrslunni er vísað til gr. 13.9 d-lið að í stuðningsmannahópi Þórs á umræddum leik var enginn af forystumönnum knattspyrnudeildar Þórs.“

Í dómi Víkings segir:
Víkingi R. var veittur kostur á að skila athugasemdum við skýrslu eftirlitsmanns og þann 14. apríl bárust svör frá félaginu þar sem eftirfarandi kom fram:

„Knattspyrnudeild Víkings hefur móttekið erindi KSÍ dags. 13. apríl sl. vegna leiks Víkings og Breiðablik í Bestu deild karla. Eins og segir í skýrslu eftirlitsmanns leiksins þá notuðu stuðningsfólk Víkings reykblys fyrir upphafsflaut og eftir jöfnunarmark Víkings á 71. mínútu leiksins. Þetta var ekki gert í samráði við forsvarsfólk félagsins né með samþyki félagsins. Eins og segir réttilega í skýrslunni var um að ræða reykblys, en þau eru talin skaðlaus og framkalla einungis reyk en ekki eld. Blysin eru t.d. notuð í kvikmyndagerð og í leikhúsum. Þannig var ekki um að ræða eldblys eða neyðarblys eins og hafa sést áður á leikjum hér á landi og sektað hefur verið fyrir. Reykblys hafa verið notuð vísvegar um Evrópu á knattspyrnuleikjum og teljast þau ekki vera hættuleg fólki eða öðrum váhorfendum. Þess vegna hefur notkun þeirra almennt verið samþykkt við slíkar aðstæður. Aga- og úrskurðarnenfnd KSÍ hefur áður sektað fyrir notkun eldblysa með vísan til D liðar greinar 13.9 í reglugerð um aga- og úrskurðarmál á þeim grundvelli að um hættulega framkomu sé að ræða, en slíkt á ekki við um umrædd reykblys þar sem hætta stafar ekki af þeim.„

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Allt að fara yfir um í London fyrir viðburðinn í næstu viku – Ódýrasti miðinn nú á rúmar 300 þúsund krónur

Allt að fara yfir um í London fyrir viðburðinn í næstu viku – Ódýrasti miðinn nú á rúmar 300 þúsund krónur
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Spánverjar skilja margar hetjur eftir heima í sumar

Spánverjar skilja margar hetjur eftir heima í sumar
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Arnar um Aron Einar: „Síðasti leikmaðurinn sem ég þarf að vega og meta“

Arnar um Aron Einar: „Síðasti leikmaðurinn sem ég þarf að vega og meta“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Ítarlegt viðtal við Arnar Gunnlaugs: Spurður út í vonarstjörnu Íslands – „Þeir vita alveg hvar þeir eru í fæðukeðjunni“

Ítarlegt viðtal við Arnar Gunnlaugs: Spurður út í vonarstjörnu Íslands – „Þeir vita alveg hvar þeir eru í fæðukeðjunni“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Arnar velur tvo hópa fyrir komandi leiki – Tíu taka þátt í báðum

Arnar velur tvo hópa fyrir komandi leiki – Tíu taka þátt í báðum
433Sport
Í gær

Myndband: Rauk út af blaðamannafundi eftir sigur í gær – „Ertu svindlari?“

Myndband: Rauk út af blaðamannafundi eftir sigur í gær – „Ertu svindlari?“
433Sport
Í gær

Birta samskipti dómara og VAR-herbergisins frá atvikinu í London um helgina – Hlustaðu á það sem gekk á

Birta samskipti dómara og VAR-herbergisins frá atvikinu í London um helgina – Hlustaðu á það sem gekk á