fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Myndir af vettvangi birtar – Lést eftir að lest á fullri ferð keyrði á hann

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 14:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnuheimurinn hefur orðið fyrir miklu áfalli eftir að fyrrum markvörður Alex Manninger er látinn, aðeins 48 ára að aldri.

Nú hefur komið í ljós að bifreið Manninger varð fyrir lest sem keyrði á hann. 25 voru um borð í lestinni og allir sluppu án meiðsla.

Hann lauk ferli sínum árið 2017 þar sem hann var hjá Liverpool án þess að spila.

Manninger var þekktur fyrir feril sinn hjá stórliðum á borð við Arsenal og Juventus. Hann hóf feril sinn hjá Arsenal á tíunda áratugnum og var hluti af liði sem vann bæði deild og bikar á Englandi.

Alex Manninger og Arsene Wenger árið 2017.
Getty Images

Síðar á ferlinum lék hann með Juventus þar sem hann var traustur varamarkvörður og vann meðal annars ítalska meistaratitla með félaginu. Hann var einnig landsliðsmaður Austurríkis um árabil.

Manninger var vel liðinn innan knattspyrnuheimsins og þótti fyrirmyndar atvinnumaður. Margir hafa nú minnst hans og vottað fjölskyldu hans samúð.

Andlát hans er mikill missir fyrir knattspyrnuna og skilur eftir sig stórt skarð meðal þeirra sem fylgdust með ferli hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool