fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Þess vegna vaknar fólk fyrr þegar það eldist

Pressan
Sunnudaginn 15. febrúar 2026 16:30

Fólk sér eftir ýmsu þegar það fer á eftirlaun. Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hefur þú kannski tekið eftir því að eftir því sem þú eldist, þá vaknar þú fyrr en áður. Þú sofnar í sófanum snemma á laugardagskvöldi og mætir fyrst allra í röðina hjá bakaranum.

Hjá mörgum er það lífsstíllinn sem stýrir þessu en rannsóknir benda til að í raun snúist þetta um líffræði. Vita skýrir frá þessu.

Fram kemur að eftir því sem við eldumst, þá breytast viðbrögðin við birtu og fleiru. Vísindamenn við University of Michigan segja að heilinn missi smám saman getuna til að átta sig á litlu „tímamerkjunum“ sem sjá til þess að innra úrið okkar stillir sig í takt við dægurrytmann.

Meðal þessara tímamerkja eru sólarljós, máltíðir og líkamleg áreynsla. Taugafrumurnar, sem sjá venjulega um að senda þessi skilaboð um heilann, missa starfsgetuna með aldrinum. Það hefur þau áhrif að líkaminn heldur að háttatíminn sé miklu fyrr en okkur finnst sjálfum.

Þess utan eiga augun erfiðara með að láta ljós sleppa inn eftir því sem við eldumst og það fær heilann til að halda að sólin sé sest, þrátt fyrir að það sé enn bjart úti. Vagl á auga, sem um helmingur allra yfir áttræðu fær, dregur svo mikið úr birtu að líkaminn byrjar að framleiða svefnhormónið melatónín alltof snemma. Af þeim sökum finnur margt eldra fólk til þreytu strax um eftirmiðdaginn.

En það er hægt að blekkja líkamann. Vísindamenn ráðleggja fólki að vera í sterkri birtu síðdegis og snemma á kvöldin til að fá heilann til að trúa að dagurinn sé lengri. Göngutúr fyrir sólsetur eða ein klukkustund fyrir framan lampa með hvítu ljósi, getur hjálpað til við að seinka háttatímanum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Í gær

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér