fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Verulega ósáttir við Sádana eftir að allt klikkaði

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 19:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fenerbahce segir Al-Ittihad bera ábyrgð á því að félagaskipti N’Golo Kante til tyrkneska félagsins hafi runnið út í sandinn á lokametrunum. Í yfirlýsingu frá Fenerbahce kemur fram að félagið hafi staðið við allar skuldbindingar sínar í málinu.

Samkvæmt Fenerbahce hafði náðst samkomulag við leikmennina, en skiptin hefðu falið í sér að Youssef En-Nesyri færi í hina áttina. Læknisskoðun Kante hefði farið fram og allar skyldur félagsins verið uppfylltar að fullu og á réttum tíma.

Félagið segir þó að rangar upplýsingar hafi verið skráðar í félagaskiptakerfið af hálfu Al-Ittihad, sem varð til þess að ekki tókst að ljúka skráningu innan tilskilins frests. Fenerbahce segist hafa óskað eftir framlengingu á honum og átt í samskiptum við FIFA, en án árangurs.

Kante, sem er 34 ára, gekk til liðs við Al-Ittihad frá Chelsea árið 2023 og á að baki glæsilegan feril, einnig með Leicester, hvar hann varð Englandsmeistari 2016.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool