fbpx
Miðvikudagur 21.janúar 2026
Eyjan

Ingibjörg tilkynnir formannsframboð

Eyjan
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 10:01

Ingibjörg Isaksen

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ingibjörg Isaksen þingmaður Framsóknarflokksins tilkynnti nú rétt í þessu að hún bjóði sig fram til formennsku í flokknum á flokksþingi í næsta mánuði en Sigurður Ingi Jóhannsson hafði áður tilkynnt að hann myndi láta af formennskunni. Hefur verið leitt að því líkum að Ingibjörg myndi taka slaginn ekki síst eftir að Willum Þór Þórsson fyrrum þingmaður og ráðherra flokksins mun að sögn hafa ákveðið að bjóða sig ekki fram en hann hafði verið orðaður við formannsframboð í nokkurn tíma.

Í tilkynningu Ingibjargar segir að flokkurinn standi á tímamótum og það geri íslenskt samfélag líka:

„Undanfarið hefur kastljósið beinst í auknu mæli að bágri stöðu barna og ungmenna, ekki eingöngu í menntakerfinu heldur víðar. Verkefnið er ærið, handtökin mörg og það er mín einlæga trú að samvinnuhugsjónin sem er undirstaða Framsóknarstefnunnar sé sú nálgun sem muni skila mestum árangri til framtíðar fyrir börnin okkar.“

Ingibjörg segir einnig að Ísland standi líka frammi fyrir efnahagslegum áskorunum, sem heimilin í landinu fari ekki varhluta af. Stærsta hagsmunamál okkar allra, heimilanna og fyrirtækjanna, sé að koma vaxtaumhverfinu aftur í eðlilegra horf og ná hinni þrálátu verðbólgu niður. Á sama tíma, staðinn sé vörður um atvinnulífið og verðmætasköpun. Velferðin byggi á því að fólk hafi vinnu og að fyrirtækin dafni:

„Auk þeirra mála sem ég nefndi í upphafi, er margt um að vera á hinu alþjóðlega sviði. Þróun síðustu vikna og mánaða sýnir vel hversu hverfull heimurinn er. Á óvissutímum er mikilvægt að tala af yfirvegun og skynsemi. Þannig öxlum við ábyrgð.“

Fylgið

Ingibjörg segist hafa trú á að hægt sé að endurheimta fylgi Framsóknarflokksins

„Við í Framsókn förum ekki fram með háværar yfirlýsingar. Traust ávinnst ekki með því að hafa uppi gífuryrði, heldur með verkum okkar. Það er mín einlæga trú að ef við tölum skýrt og umbúðalaust, lofum engum skýjaborgum en stöndum við það sem við segjum, að þá muni fólk fylkja sér að baki okkur að nýju.“

Hún minnir á stjórnmálaferil sinn:

„Ég settist fyrst á þing árið 2021 og hef gengið í gegnum tvennar alþingiskosningar síðan og verið þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast á þeirri leið Framsóknarfólki víða um land. Áður sat ég í sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar og svo í bæjarstjórn Akureyrar frá árinu 2014, og starfaði lengst af sem kennari og framkvæmdastjóri heilbrigðisstofnunar.“

Ingibjörg segi tækifæri framundan fyrir flokkinn í sveitarstjórnarkosningum um allt land. Framsókn sé sterk á sveitarstjórnarstiginu en betur megi ef duga skal. Þar skipti öflug grasrót flokksins sköpum. Sjaldan eða aldrei, hefur henni fundist rödd Framsóknar skipta meira máli og erindi flokksins jafnt brýnt. Hún segir stöðu  flokksins kallar á breytingar og verkefnin framundan ærin:

„Nú tekur við vinnan við að ávinna okkur traust landsmanna, tala skýrt og sækja fram.Ég lofa ykkur því að njóti ég stuðnings ykkar til formanns mun ég leggja mig alla fram um að vinna í þágu ykkar fólksins, jafnt í höfuðborginni sem og á landsbyggðinni. Ég treysti mér í verkin og er reiðubúin að bretta upp ermar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Eyþór Eðvarðsson skrifar: Að afgreiða loftslagsvandann sem „vitleysu“ er vitleysa

Eyþór Eðvarðsson skrifar: Að afgreiða loftslagsvandann sem „vitleysu“ er vitleysa
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Nína Richter skrifar: Ljóskunni afneitað

Nína Richter skrifar: Ljóskunni afneitað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Pólitísk afturganga fer á stjá – var skynsamlegt af VG að leiða Bjarna Ben til valda eða öfugt?

Orðið á götunni: Pólitísk afturganga fer á stjá – var skynsamlegt af VG að leiða Bjarna Ben til valda eða öfugt?
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Thomas Möller skrifar: Er Svarta stöðin komin aftur?

Thomas Möller skrifar: Er Svarta stöðin komin aftur?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hákon vill 3. sæti Samfylkingar í Kópavogi

Hákon vill 3. sæti Samfylkingar í Kópavogi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Magnús Árni Skjöld Magnússon: Gerum eins og Svíar – förum inn í ESB með höfuðið hátt og til að hafa áhrif

Magnús Árni Skjöld Magnússon: Gerum eins og Svíar – förum inn í ESB með höfuðið hátt og til að hafa áhrif
Eyjan
Fyrir 1 viku

Magnús Árni Skjöld Magnússon: Bull, lygar og þvæla til að ná fylgi þeirra sem nenna ekki að kynna sér málin

Magnús Árni Skjöld Magnússon: Bull, lygar og þvæla til að ná fylgi þeirra sem nenna ekki að kynna sér málin
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Íslenska kindin

Nína Richter skrifar: Íslenska kindin