fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Stormurinn eykst í kringum Beckham fjölskylduna: Sendir frá langa yfirlýsingu og tekur foreldra sína af lífi

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 19. janúar 2026 20:30

Brooklyn Beckham, Nicola Peltz, Victoria Beckham og David Beckham.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brooklyn Beckham hefur sent frá sér harðorða yfirlýsingu þar sem hann ræðst opinberlega á foreldra sína, David og Victoriu Beckham, og fjallar í fyrsta sinn ítarlega um langvarandi fjölskyldudeilu sem hefur verið í umræðunni undanfarin ár.

Brooklyn, sem er 26 ára og elsti sonur hjónanna, birti í kvöld sex blaðsíðna yfirlýsingu á Instagram þar sem hann segist ekki hafa neinn áhuga á að sættast við fjölskyldu sína og að hann sé loksins að standa með sjálfum sér „í fyrsta skipti á ævinni“. Hann og eiginkona hans, leikkonan Nicola Peltz, 31 árs, hafa verið í miðju deilunnar og hafa í kjölfarið sniðgengið fjölmarga stóra fjölskylduviðburði síðustu mánuði, þar á meðal 50 ára afmæli Davids Beckham.

Brooklyn fer ekki í grafgötur með skoðanir sínar og segir sig hafa verið „stjórnað af fjölskyldu sem setur ímynd og kynningu ofar öllu öðru. Hann segist hafa fundið „frið og létti“ eftir að hann kynntist Nicolu, eftir að hafa glímt við mikinn kvíða stóran hluta ævinnar. Hann fullyrðir jafnframt að vandamálin innan fjölskyldunnar hafi hafist í kringum brúðkaup þeirra í apríl 2022.

Mynd/Getty

Í yfirlýsingunni heldur Brooklyn því fram að foreldrar hans hafi ítrekað reynt að skemma samband hans og Nicolu. Hann segir móður sína, Victoriu, hafa hætt við að hanna brúðarkjól Nicolu á elleftu stundu, þrátt fyrir að Nicola hafi verið spennt fyrir því að klæðast hönnun hennar. Þá segir hann að móðir hans hafi tekið yfir fyrsta dans þeirra hjóna í brúðkaupinu, sem hafi valdið honum mikilli vanlíðan og skömm. Hann segir þetta hafa orðið til þess að þau ákváðu að endurnýja heit sín ári síðar án viðveru fjölskyldu hans.

Brooklyn sakar einnig foreldra sína um að hafa þrýst á hann fyrir brúðkaupið að skrifa undir samning þar sem hann hefði framselt réttindi að nafni sínu, samning sem hefði haft áhrif á hann, eiginkonu hans og framtíðarbörn. Hann segir að þegar hann neitaði að skrifa undir hafi sambandið versnað verulega.

Beckham og Victoria þar sem þrjú af fjórum börnum þeirra mættu.

Í yfirlýsingunni gagnrýnir hann einnig föður sinn harðlega. Hann segir sig hafa verið í Bretlandi til að vera viðstaddur afmæli Davids, en að öllum tilraunum hans til að hitta föður sinn áður hafi verið hafnað. Þegar loks var samþykkt að hitta hann hafi það verið með því skilyrði að Nicola væri ekki boðin. Brooklyn lýsir því sem „höggi í andlitið“.

Hann heldur því fram að foreldrar hans hafi um árabil stjórnað frásögninni í fjölmiðlum um fjölskylduna og að samfélagsmiðlar, viðburðir og sviðsett fjölskyldumynd hafi alltaf verið í fyrirrúmi. Hann segir að síðan hann fór að standa með sjálfum sér hafi hann orðið fyrir stöðugum árásum, bæði í einkalífi og opinberlega, og að jafnvel bræður hans hafi verið hvattir til að ráðast á hann á samfélagsmiðlum áður en þeir lokuðu á hann.

Brooklyn segir að móðir hans hafi ítrekað sýnt eiginkonu hans vanvirðingu og jafnvel boðið konum úr fortíð hans inn í líf þeirra með það að markmiði að skapa óþægindi. Hann segir að fjölskyldan setji „Brand Beckham“ ofar fjölskyldutengslum og að ást sé mæld í færslum á samfélagsmiðlum og sviðsettum myndatökum.

Að lokum segir Brooklyn að frásögnin um að Nicola stjórni honum sé röng. Þvert á móti hafi hann verið stjórnað af foreldrum sínum megnið af lífi sínu. Hann segist loksins laus við kvíða, upplifa frið og vera þakklátur fyrir lífið sem hann hefur valið með eiginkonu sinni.

Hann segir að þau óski sér einfaldlega friðar, næði og hamingju fyrir sig og framtíðarfjölskyldu sína, fjarri ímynd, fjölmiðlaumfjöllun og stjórnun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Tóku Jóa Kalla og Hafnfirðinga til bæna vegna uppákomunnar á föstudag: „Hann gat ekki sætt sig við að Fylkismenn myndu ekki láta hann bully-a sig“

Tóku Jóa Kalla og Hafnfirðinga til bæna vegna uppákomunnar á föstudag: „Hann gat ekki sætt sig við að Fylkismenn myndu ekki láta hann bully-a sig“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Liverpool gæti íhugað sölu – Áhugi frá Ítalíu

Liverpool gæti íhugað sölu – Áhugi frá Ítalíu
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?
433Sport
Í gær

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna