
Gabríel Douane Boama og yngri bróðir hans, Anton Mario Boama, afplána nú refsidóma á sama gangi í Fangelsinu Hólmsheiði. Bræðurnir eru samrýmdir og hafa undanfarið unnið saman að tónlistarsköpun. Í vikunni gáfu þeir út lagið Corleone sem hlýða má á í spilara hér neðst í fréttinni, þeir vinna saman að fleiri lögum og framtíðarmarkmið er hljómplata með rapptónlist.
Þeir bræður eiga báðir drauma og þrár um að komast á beinu brautina í lífinu, snúa baki við afbrotum og fíkniefnaneyslu og byggja upp gott líf. Gabríel segir í viðtali við DV að hann líti á tónlistarsköpun sem tæki til að ná þessu markmiði.
„Það er mikil útrás að setjast niður með blað og penna og skrifa allt frá sér,“ segir hann en hann hefur lengi fengist við textagerð. Þeir bræður notast við tölvu, hljóðkort og míkrafón við tónlistarsköpunina. Gabríel segist vera afar þakklátur fangelsisyfirvöldum á Hólmsheiði fyrir að veita sér aðstöðu til að vinna að tónlist og liggur honum sérstaklega gott orð til Þóris Guðlaugssonar, varðstjóra á Hólmsheiði:
„Það má þakka Þóri varðstjóra fyrir þetta, hann hefur alltaf séð það góða í mér og Antoni og gaf okkur tækifæri til að fá þessa aðstöðu til að taka upp. Þetta er búið að reynast vel og það hefur ekkert vesen verið á okkur síðan.“
Það er óvenjulegt að tveir bræður afpláni saman í fangelsi en Gabríel segir að þeim bræðrum komi vel saman:
„Ég og bróðir minn erum næstum eins og sama mannneskjan og það er ekkert sterkara en bræðraást í mínum augum. Við náum vel saman og erum þakklátir fyrir tækifærin sem Hólmsheiði hefur gefið okkur til að verða að betri mönnum og fyrir hjálpina við að undirbúa okkur undir frelsið,“ segir Gabríel.
Gabríel vakti þjóðarathygli árið 2022 er hann strauk úr haldi lögreglu í Héraðsdómi Reykjavíkur, þar sem mál hans var til meðferðar. Var hann handtekinn nokkrum dögum síðar. Gabríel á langan brotaferil að baki þrátt fyrir ungan aldur (23 ára) og var meðal annars viðriðinn blóðug átök í Borgarholtsskóla í janúar árið 2021. Gabríel afplánar núna refsingu fyrir ýmis brot og eru einhver þeirra framin innan fangelsismúranna. Hann hefur reynt að koma lífi sínu á rétta braut eins og hann greindi frá í viðtali við DV sumarið 2024:
Skömmu eftir viðtalið lenti Gabríel í blóðugum átökum við fangaverði á Litla-Hrauni og þurftu þrír að leita sér læknisaðstoðar.
En Gabríel hefur ekki gefist upp á því að koma lífi sínu á rétta braut og hann lætur vel af dvölinni á Hólmsheiði og þar hefur hann náð jafnvægi. „Ég er búinn að vera edrú og mæti á AA-fundi. Antoni gengur líka mjög vel og það hefur ekki verið neitt vesen á honum,“ segir Gabríel, en Anton, bróðir hans, er aðeins rétt tæplega 18 ára gamall.
Gabríel lýkur afplánun 3. febrúar. Þó er ekki víst að hann njóti frelsis lengi því hann þarf áfram að svara til saka fyrir gömul brot. „Við erum að fara saman í aðalmeðferð. Þetta er gamalt mál og það er ákært fyrir stórfellda líkamsárás og vopnað rán. En þetta er kafli í lífi okkar sem er lokið og núna ætlum við að halda okkur við tónlistina,“ segir Gabríel, en hann játar sök í málinu. Hann iðrast brota sinna og grípur ekki til afsakana:
„Ég á skilið að vera í fangelsi fyrir það sem ég hef gert og ég er búinn að læra mikið af þessari refsingu. Það geta allir breyst en það er eitt að segja það og annað að láta það gerast. En ég vil vera til staðar fyrir mína nánustu og tónlistin er það eina sem við Anton viljum núna stunda og við ætlum að setja lífsreynsluna okkar í lögin og textana. Tónlistin heldur manni virkum og hjálpar að setja fókusinn á það jákvæða frekar en neikvæða.“
Hann býst við að fá fangelsisdóm vegna málsins sem nú er fyrir dómi en vonast þó eftir að geta fengið að afplána í samfélagsþjónustu.
Nýja lagið með þeim bræðrum, Corleone, er í spilaranum hér fyrir neðan. DV spurði Gabríel hafði hann vilji segja lesendum DV um lagið:
„Við Anton vildum öðruvísi texta, við höfum mikið verið að rappa um gróft ofbeldi en við vildum búa til lag fyrir alla, uppbyggilegt lag.“
Aðspurður segir hann fleiri lög vera í smíðum og þeir bræður stefni á að gefa út plötu eftir að þeir báðir hafa lokið afplánun og greitt skuld sína við samfélagið. Þeir horfa bjartsýnir til framtíðar.
DV átti í samskiptum við Gabríel vegna þessarar greinar á þriðjudag og miðvikudag. Á föstudag fékk DV hins vegar ábendingu um að Gabríel hefði verið fluttur á Litla-Hraun í kjölfar þess að hann féll á bindindi. Jafnframt var bróðir hans, Anton, settur í einangrun á Hólmsheiði eftir átök við fangavörð. Þetta herma öruggar heimildir DV.
Nýútgefið lag þeirra bræðra má hlusta á í spilaranum hér fyrir neðan: