fbpx
Laugardagur 25.október 2025
Fókus

Vín fyrir gæludýr komið á markað – „Gott gegn stressi“

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 25. október 2025 18:30

Kisa gæðir sér á glasi. Mynd/Muttley´s Estate

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirtæki í Nýja Sjálandi hefur sett vín fyrir gæludýr á markað. Vínið er alkóhóllaust og ekki með vínberjum, sem eru eitruð fyrir hunda og ketti.

Miðillinn AFP greinir frá þessu.

Brugghús í borginni Auckland í Nýja Sjálandi, Muttley´s Estate, er byrjað að selja vín fyrir gæludýr. Er um að ræða ýmsar tegundir sem kallast nöfnum á borð við „Pawt“, „Champawgne“, „Purrno Noir“ og „Sauvignon Bark.“ Allt sniðugar útfærslur á heiti alvöru víns.

Kemur fram að vínið innihaldi hvorki vínber né alkóhól. En vínber eru eitruð fyrir hunda og ketti og geta valdið þeim alvarlegum nýrnabilunum, jafn vel dauða. Einungis efni sem eru góð fyrir dýrin eru í víninu, og er það einnig afar bragðgott.

Eigandi brugghússins, John Roberts, ákvað að slá til eftir að hafa séð bjór fyrir hunda á ferðum sínum erlendis. „Þetta er gott gegn stressi,“ sagði hann. Til að mynda þegar dýrin verða hrædd við flugelda. „Það var ekkert heilbrigt til á markaðinum fyrir gæludýrin annað en að lyfja þau niður.“

Þegar er byrjað að selja vínið í Nýja Sjálandi og Ástralíu. Stefnan er sett á að koma því á markað í Asíu, Norður Ameríku og Evrópu síðar meir.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Lífið snerist á hvolf þegar hún hryggbrotnaði – „Mér var sagt að englar hefðu vakað yfir mér og ég trúi því“

Lífið snerist á hvolf þegar hún hryggbrotnaði – „Mér var sagt að englar hefðu vakað yfir mér og ég trúi því“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Victoria Beckham opnar sig um framhjáhald eiginmannsins

Victoria Beckham opnar sig um framhjáhald eiginmannsins
Fókus
Fyrir 3 dögum

Stórstjarna úr Hollywood nær óþekkjanleg í neðanjarðarlest New York

Stórstjarna úr Hollywood nær óþekkjanleg í neðanjarðarlest New York
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lovísa Rós er Ungfrú Ísland Teen 2025

Lovísa Rós er Ungfrú Ísland Teen 2025