fbpx
Sunnudagur 09.nóvember 2025
Eyjan

Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 16. september 2025 11:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helga Kristín Gunnlaugsdóttir og Kristján Helgi Olsen Ævarsson hafa verið ráðin nýir vörumerkjastjórar hjá Ölgerðinni, eins og kemur fram í fréttatilkynningu.

Helga Kristín Gunnlaugsdóttir kemur til Ölgerðarinnar frá auglýsingaskrifstofunni Kontor, þar sem hún starfaði sem viðskiptastjóri og sinnti markaðsráðgjöf fyrir mörg þekkt íslensk vörumerki. Hún er með meistaragráðu í verkefnastjórnun frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Helga mun stýra vörumerkjum Carlsberg Group og Guinness.

„Það er spennandi áskorun að fá að vinna með Carlsberg Group, einu stærsta brugghúsi heims, að frekari uppbyggingu merkja þeirra.  Vörumerkin hafa jú um árabil verið fyrirferðamikil í íslenskri viðburðamenningu, til dæmis sem helsti kostandi Þjóðhátíðar í Eyjum og margra stærstu samkoma landsins. Þá styttist í jólabjóravertíðina þar sem Tuborg hefur mikla og sterka nærveru og er langsöluhæsti jólabjórinn. Ég hlakka líka til að fylgja eftir gríðarlegum uppgangi Guinness hér á landi, en það er óhætt að segja að hálfgert „Guinness æði“ hafi ríkt,“ segir Helga, sem segist virkilega spennt að ganga til liðs við Ölgerðina.

Kristján Helgi Olsen Ævarsson mun stýra verkefnum á borð við Borg Brugghús, Brennivín og Öglu Gosgerð ásamt fleiru.

Kristján Helgi starfaði áður hjá Fríhöfninni og Samkaupum þar sem hann vann að verkefnum tengdum innkaupum, birgðastýringu og vöruflokkastjórnun auk þess að sjá um samningagerð og samskipti við birgja. Hann er með B.A. í lögfræði frá H.Í.

„Það er virkilega ánægjulegt að taka við þessu hlutverki, enda þekki ég, eins og aðrir landsmenn, þessi vörumerki vel og hef á þeim dálæti. Brennivín fagnar einmitt 90 ára afmæli á þessu ári og það hefur líklega aldrei verið sterkara en einmitt nú. Ég hef fylgst með Borg Brugghúsi leiða íslenska bjórmenningu til betri vegar undanfarin ár og hlakka til að fylgja þeirri vinnu vel eftir. Nú verður gaman,“ segir Kristján Helgi.

Bergsveinn Guðmundsson, markaðsstjóri áfengra drykkja hjá Ölgerðinni segir þetta öflugar ráðningar.

„Við erum ákaflega ánægð með að fá þau Helgu Kristínu og Kristján Helga til liðs við okkar öfluga teymi vörumerkjastjóra Ölgerðarinnar. Grunnurinn að öflugu og faglegu markaðsstarfi er fólkið okkar og við bindum miklar vonir við að metnaður þeirra og kraftur styðji við vöxt og framþróun vörumerkjanna,“ segir Bergsveinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Reynir Traustason: Mikil mistök að sameinast Kjarnanum

Reynir Traustason: Mikil mistök að sameinast Kjarnanum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Reynir Traustason: „Haltu kjafti, gamla fiskibollan þín!“

Reynir Traustason: „Haltu kjafti, gamla fiskibollan þín!“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Guðrún vill minnka allt

Orðið á götunni: Guðrún vill minnka allt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Ofurskattar íhaldsaflanna

Sigmundur Ernir skrifar: Ofurskattar íhaldsaflanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Tók bara utan um stefnuvottinn og þakkaði honum fyrir að koma með bréfið

Reynir Traustason: Tók bara utan um stefnuvottinn og þakkaði honum fyrir að koma með bréfið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Nú vaknar Vilhjálmur upp við áralangt sukk

Orðið á götunni: Nú vaknar Vilhjálmur upp við áralangt sukk
Eyjan
Fyrir 1 viku

Nýir lánaskilmálar í kjölfar hæstaréttardóms stórkostlegt tækifæri fyrir Seðlabankann

Nýir lánaskilmálar í kjölfar hæstaréttardóms stórkostlegt tækifæri fyrir Seðlabankann
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Hver er merkasti forsætisráðherra aldarinnar?

Björn Jón skrifar: Hver er merkasti forsætisráðherra aldarinnar?