fbpx
Fimmtudagur 13.nóvember 2025
Fréttir

Nýjar vendingar varðandi stolna nasistamálverkið – Horfið þegar lögregla kom á vettvang

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 28. ágúst 2025 11:40

Verkið uppi á vegg inni í stofu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Örlög aldagamals og afar verðmæts málverks sem nasistar stálu frá safnara af gyðingaættum á tímum seinni heimstyrjaldarinnar hefur vakið alþjóðlega athygli. Verkið, sem er frá árinu 1743 og er eftir barokklistmálarann Guiseppe Vittore Ghislandi, heitir „Mynd af dömu“ (e. Portrait of a lady) og var í eigu
hollenska listaverkasalans og gyðingsins Jacques Goudstikker.

Goudstikker átti mjög stórt safn af listaverkum, eða um 1.100 verk, og var stór hluta þeira seldur með valdi til nasistaleiðtogans Hermanns Göring skömmu eftir að Goudstikker flúði frá Hollandi árið 1940. Á undanförnum áratugum hefur tekist að endurheimta mörg verkanna en í gegnum árin hefur það verið ráðgáta hvað varð um þetta tiltekna verk eftir Ghislandi.

Blaðamenn hollenska blaðsins AD hafi árum saman reynt að rekja ferðir verksins, meðal annars með því að fara í gegnum gömul skjöl frá stríðsárunum. Þau skjöl bentu sterklega til þess að verkið hefði endað í fórum SS-foringjans, Friedrich Kadgien, sem flúði til Argentínu eftir að styrjöldinni lauk.  Höfðu blaðamenn hollenska miðilsins reynt að banka upp á í gegnum árin hjá ættingjum nasistaforingjans en gripið í tómt.

Að endingu kom málverkið fram á sjónarsviðið þegar það sást hangandi fyrir ofan í áðurnefndri fasteignaauglýsingu í áðurnefndu húsi sem er í eigu dóttur Kadgien, Patriciu.

Í kjölfarið fengu lögregluyfirvöld húsleitarheimild og skömmu síðar var bankað upp á hjá nasistadótturinni. Þegar þangað var komið var hins vegar búið að skipta málverkinu út fyrir nýrra verk. Var hin aldna Patricia á vettvangi ásamt lögfræðingi sínum og var þögul sem gröfin.

Daily Mail fjallar um málið og vonbrigði rannsakenda þegar ljóst var að þeir gripu í tómt. Er talið að Patricia gæti átt yfir höfði sér ákæru fyrir að hylma yfir þjófnaðinn og er fasteignaauglýsing þar mikilvægt sönnunargagn.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Ingi ráðinn til KSÍ
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Eldri maður situr uppi með reikninginn – Var ekki skilgreindur sem aldraður

Eldri maður situr uppi með reikninginn – Var ekki skilgreindur sem aldraður
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir fórnarlambsumræðu illa upplýstra um sjávarútveginn og kennir hruninu um

Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir fórnarlambsumræðu illa upplýstra um sjávarútveginn og kennir hruninu um