fbpx
Föstudagur 12.desember 2025
Fréttir

Margrét, Ása og Arndís bjóða á stefnumót

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 11. nóvember 2025 17:09

Margrét, Ása og Arndís

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þér er boðið til stefnumóts við þrjá höfunda á Borgarbókasafninu Kringlunni miðvikudaginn 12. nóvember kl. 17.30 þar sem í boði verða upplestrar, sögur og góðar samræður. 

Arndís Þórarinsdóttir, Ása Marin og Margrét Höskuldsdóttir sýna með verkum sínum að það er list að skrifa góðar bækur sem hreyfa við tilfinningunum án þess að taka lífið of hátíðlega. Þetta er tækifæri til að hitta þær, heyra hvað kveikti hugmyndirnar að bókum þeirra og spjalla við þær.

„Við stöllur vorum að ræða saman og þá rann upp fyrir okkur að þótt bækurnar okkar þrjár séu ólíkar eru þær allar skrifaðar til þess að gleðja hinn almenna lesanda, hvort sem hann er á höttunum eftir ástarsögu, glæpasögu eða gamansögu,“ segir Arndís. Hún bætir við að þær séu líka allar ástríðufullir lesendur og spenntar að hitta fleiri slíka á Borgarbókasafninu Kringlunni. „Jólabókaflóðið er jú hátíð lesenda,“ segir Arndís glaðlega.

Stundin, sem ber yfirskriftina Stefnumót við lesendur, er tileinkuð sögum sem minna okkur á hversu dýrmætt það er að gleyma sér í góðri bók. Viðburðurinn hefst á miðvikudag kl. 17:30 Enginn aðgangseyrir Öll hjartanlega velkomin!

Rými fyrir höfunda Viðburðurinn er hluti af Rými fyrir höfunda. Þar geta rithöfundar og skáld sem eru að gefa út bók og hafa áhuga á að standa fyrir kynningu á nýju verki og/eða eldri verkum sínum pantað rými á Borgarbókasafninu sér að kostnaðarlausu. Nánari upplýsingar á heimasíðu Borgarbókasafnsins: www.borgarbokasafn.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Fær ekki að stunda nám á Íslandi – Trúðu ekki að hún hefði verið að lána bróður sínum pening

Fær ekki að stunda nám á Íslandi – Trúðu ekki að hún hefði verið að lána bróður sínum pening
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Landsréttur mildaði verulega dóm yfir ungum stórsmyglara

Landsréttur mildaði verulega dóm yfir ungum stórsmyglara
Fréttir
Í gær

Mohamad Kourani kominn á almennan gang á Hólmsheiði innan um tvo Alzheimer-sjúklinga

Mohamad Kourani kominn á almennan gang á Hólmsheiði innan um tvo Alzheimer-sjúklinga
Fréttir
Í gær

Bragi Valdimar ekki sáttur: „Þetta eru mikil vonbrigði“

Bragi Valdimar ekki sáttur: „Þetta eru mikil vonbrigði“
Fréttir
Í gær

Andstæðingar sjókvíaeldis kærðu töf á vinnslu umsóknar um rekstrarleyfi

Andstæðingar sjókvíaeldis kærðu töf á vinnslu umsóknar um rekstrarleyfi