fbpx
Miðvikudagur 27.ágúst 2025
Fréttir

Náin tengsl á milli hins grunaða í hraðbankamálinu og sakborninga í Gufunesmálinu – Var á hótelberbergi með tálbeitustelpunni

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 27. ágúst 2025 11:00

Héraðsdómur Suðurlands. Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúmlega fertugur maður sem situr í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á stuldi á hraðbanka Íslandsbanka í Mosfellsbæ, aðfaranótt þriðjudagsins 19. ágúst, mun bera vitni í Gufunesmálinu næstkomandi föstudag. Eins og margoft hefur komið fram varðar Gufunesmálið andlát Hjörleifs Hauks Guðmundssonar, 65 ára manns frá Þorlákshöfn sem lést eftir að hafa verið numinn brott skammt frá heimili sínu í Þorlákshöfn að kvöldi 10. mars og þurft að þola miklar misþyrmingar í kjölfarið.

Eins og greint var frá í fréttum í gær hefur hraðbankinn verið endurheimtur og allt það fé sem í honum var, 22 milljónir króna. Var skurðgröfu beitt við verkið og hraðbankinn rifinn út og farið á brott með hann.

Hinn grunaði er 41 árs gamall fjölskyldufaðir. Auk gruns um hlutdeild í hraðbankastuldi er maðurinn grunaður um þátttöku í ráni á fjármunum úr flutningabíl í Hamraborg vorið 2024, en það mál er enn í rannsókn lögreglu.

Tengsl við Stefán Blackburn og stúlkuna

Samkvæmt heimildum DV hefur hann náin tengsl við Stefán Blackburn, einn sakborninganna í Gufunesmálinu. Í eins og hálfrar klukkustundar löngu myndbandi sem spilað var í Héraðsdómi Suðurlands á mánudag sjást þeir Stefán og umræddur maður eiga í samskiptum kvöldið sem ferðin örlagaríka til Þorlákshafnar var farin.

Maðurinn var handtekinn við rannsókn Gufunesmálsins í marsmánuði og sat í gæsluvarðhaldi. Var hann grunaður um hlutdeild í mannráni og fjárkúgun. Í dag er ekki talið að hann hafi átt hlut að máli, í það minnsta er hann ekki á meðal ákærðu í málinu. Hann er hins vegar talinn búa yfir upplýsingum um sakborninga og er þess vegna kallaður til vitnis.

Sjá einnig: Taugaóstyrk og lágmælt tálbeitustúlka

Þegar maðurinn var handtekinn fannst hann á hótelberbergi með stúlkunni sem ákærð er fyrir hlutdeild í frelsissviptingu og ráni í Gufunesmálinu, en hlutverk hennar í brotunum var að hringja í Hjörleif heitinn og þykjast mæla sér mót við hann. Stúlkan, sem er tvítug, og maðurinn, eru sögð hafa átt í ástarsambandi, rétt eins og dvöl þeirra á hótelherberginu er sterk vísbending um. Stúlkan bar fyrir dómi á mánudag að á þessum tíma hafi hún verið í daglegri kannabisneyslu en farið í meðferð í apríl síðastliðinn. Ljóst er að stúlkan og maðurinn voru saman á hótelberhergi kvöldið örlagaríka þegar Hjörleifur var numinn á brott í kjölfar símtala frá stúlkunni þar sem hún þóttist mæla sér mót við hann.

Stórskuldugur

Maðurinn er sagður hafa náð tökum á lífi sínu eftir erfiða tíma. Árið 2009 var hann dæmdur fyrir eignaspjöll og árið 2013 var hann dæmdur fyrir umferðarlagabrot, þjófnaði, hylmingu fíkniefnalagabrot.

Eftir að hafa tekið út dóm er maðurinn sagður hafa snúið lífi sínu til betri vegar og var þar lykilatriði að hann sneri baki við fíkniefnaneyslu. Hann eignaðist eiginkonu og börn og starfaði í byggingariðnaðinum.

Hann er hins vegar sagður hafa misst tök á lífi sínu aftur á allra síðustu árum vegna fíkniefnaneyslu og spilafíknar. Er hann sagður vera stórskuldugur.

Uppfært kl. 15:30 – Gaf skýrslu í dag:

Maðurinn gaf skýrslu í gegnum fjarfundabúnað við dóminn í dag. Áður hafði staðið til að skýrslutakan yrði á föstudag en dagskrá vitnaleiðslu getur breyst með litlum fyrirvara.

Maðurinn segist lítið hafa vitað um tálbeituaðgerðina gegn Hjörleifi en honum hafi verið boðið að koma með til Þorlákshafnar. Hann hafi hafnað því boði. Hann var einnig spurður út í símtöl hinnar ákærðu vinkonu hans til Hjörleifs og segist hann lítið sem ekkert vita um þau. Vísir greinir frá þessu. Í frétt Vísis segir:

„Elimar Hauksson, verjandi ungrar konu sem er ákærð í málinu fyrir að hafa hringt í Hjörleif í því skyni að tæla hann út af heimili sínu á Þorlákshöfn þetta kvöld spurði manninn út í samskipti hans við konuna. Hann sagði þau hafa verið mjög góða vini. Maðurinn sagðist hafa heyrt af því daginn eftir að hún hafi „hringt einhver símtöl“ þetta kvöld. 

Þá var hann spurður hvort hún hafi verið beðin um að hringja þessi símtöl eða viljað það sjálf. „Ekki hugmynd,“ sagði hann. Hann kannaðist þó við að hún hefði hringt símtöl sem þessi. Þar hafi hún talað við menn sem væru í óviðeigandi samskiptum við börn fyrir svokallaðar tálbeituaðgerðir. Hann hélt því fram að fram að þessu hefði engu ofbeldi verið beitt, en mönnum hótað að óviðeigandi efni gæti ratað á netið.“

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt