Wall Street Journal greinir frá því að Trump hafi farið yfir áætlanir um árás á Fordow-kjarnorkuvinnslustöðina sem er neðanjarðar.
Aðeins Bandaríkjamenn eru sagðir búa yfir nægilega öflugu vopni til að granda stöðinni, sprengju sem kallast GBU-57A MOP. Er sprengjan 13,6 tonn að þyngt og er hún talin geta valdið eyðileggingu á allt að 60 metra dýpi.
Í frétt Wall Street Journal kemur fram að Trump ætli að bíða um stund og sjá hvort Íranir gefist upp á kjarnorkuáætlun sinni áður en hann gefur endanlegt grænt ljós. Greinir blaðið frá því að Trump vonist enn eftir því að Íranir vilji semja.
Trump var sjálfur loðinn í svörum í gær þegar hann var spurður hvort hann ætlaði að heimila árás á Íran. „Ég gæti gert það, eða ekki,“ sagði hann.
Átökin á milli Írans og Ísraels hafa haldið áfram að stigmagnast síðustu daga en í morgun gerðu Íranir árás á Soroka-sjúkrahúsið í Beersheba með þeim afleiðingum að minnst 65 særðust. Hefur Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, sagt að Íranir muni gjalda grimmilega fyrir árásina á sjúkrahúsið.