Ef þú þekkir þessa tilfinningu, þá ertu ekki ein(n) um það. Þetta örstutta augnablik varfærni kemur oft upp um hver þú ert.
Hér fyrir neðan segjum við frá nokkrum persónuleikaeinkennum sem sjást of hjá fólki sem tékkar tvisvar hvort dyrnar séu læstar, jafnvel þegar það veit vel að þær eru læstar.
Þú setur öryggið ofar öllu – Það dugir þér ekki að læsa dyrunum einu sinni. Þú vilt fá andlegt og líkamlegt öryggi og kýst vissu frekar en tilviljanir segir GE Editing.
Smáatriði fara ekki fram hjá þér – Þú tekur eftir hlutum sem öðrum yfirsjást, hljóð, staðsetningar, því sem er óreglulegt. Þú ert manngerðin sem tekur eftir stafsetningarvillum og hefur yfirsýn yfir minnstu breytingar á áætlunum. Þetta gerir þig að góðum skipuleggjanda en getur einnig gert að verkum að þú hugsir of mikið um verkefnin.
Þú tekur ábyrgð – Það að tékka tvisvar á hvort dyrnar eru læstar, snýst um að taka ábyrgð á hlutunum. Þú vilt ekki láta tilviljanir ráða ferðinni. Þú sýnir að þú tekur sjálf(ur) ábyrgð á stöðunni og þetta endurspeglast oft í öðrum þáttum lífs þíns.
Þú er með snert af fullkomnunaráráttu – Ef eitthvað er ekki eins og það á að vera, þá finnur þú kannski fyrir óróleika þar til hlutunum hefur verið kippt í lag. Að ganga úr skugga um að dyrnar séu læstar, róar þig. Þetta snýst um lágmarka líkurnar á mistökum en þú þarft að vera meðvituð/aður um að þú gerir óraunhæfar kröfur til þín.
Þú hefur skilning á áhyggjum annarra – Þú ert kannski manngerðin sem segir „Engar áhyggjur, ég læsti“. Þú skilur áhyggjur annarra og reynir að róa þá og sjálfan þig. Þetta er merki um umhyggju og athygli.
Þú hefur áhyggjur en vilt takast á við þær – Að tékka hvort dyrnar eru læstar, hjálpar þér að lækka í innri röddinni sem spyr „hvað nú ef?“. Þú lætur óttann ekki stjórna þér, þú viðurkennir hann og tekur stutt skref til að finna ró.